24.03.1931
Neðri deild: 32. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 194 í C-deild Alþingistíðinda. (687)
4. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Jón Sigurðsson:
Ég á hér eina litla brtt. á þskj. 232. Hún er að mestu leyti shlj. þeirri skriflegu brtt., sem fram kom við 2. umr., en var þá tekin aftur, svo sem aðrar brtt. frá fjhn. Brtt. er við 20. gr. og gengur út á það að breyta þeim ákvæðum, sem þar eru um virðingu búpenings. Eins og ákvæðið er í frvgr., á að meta hann svo sem hann væri framgenginn í fardögum næst á eftir samkv. gildandi verðlagsskrárverði. En nú er verðlagsskráin samin missiri áður en hún kemur í gildi. T. d. hefir sú verðlagsskrá, sem fara á eftir í vetur, verið samin eftir verðlaginu eins og það var 1929, m. ö. o. fyrir meira en ári síðan. Þetta mundi gera matið á búpeningnum óeðlilegt og ranglátt, vegna þess, að sveiflur verða oft á verðlaginu. T. d. er annað verðlag á búpeningi nú en var 1929, svo að það er ekki rétt að fara eftir því nú.
Líka má benda á það, að í frv. er ekki gert ráð fyrir neinni samvinnu eða eftirliti í þessu efni, sem er ekki heldur von, þar sem verðlagsskrárverð getur ekki verið alstaðar samhljóða. Hér er gert ráð fyrir framkvæmdinni þannig, að undirskattanefnd sé skylt að gera till. um verðlag, og skulu þær till. vera komnar til yfirskattanefndar fyrir 31. des. Verðlagið er síðan ákveðið af yfirskattan., sem tilkynnir svo skattanefndum það fyrir 1. febr., svo að allir skattgreiðendur hafi nægan tíma til að kynnast því.
Ég þykist ekki þurfa að útskýra þessa till. mína. Þetta er einfalt mál, og hæstv. fjmrh. hefir lýst yfir því, að hann muni fylgja till.
Ég skal svo láta máli mínu lokið. Ég sleppi því að gera aths. við einstök atriði, en læt mér nægja að gera grein fyrir skoðun minni með atkv. mínu.