25.03.1931
Neðri deild: 33. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 200 í C-deild Alþingistíðinda. (693)
4. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Jón Ólafsson:
Þegar ég kvaddi mér hljóðs, þá var það af því, að hv. 1. þm. Reykv. gat ekki verið hér í deildinni, en bað mig að mæla með nokkrum orðum fyrir brtt. sinni á þskj. 191. Nú er þessi hv. þm. mættur her, svo að ég sé ekki ástæðu til að fara út í till. hans. En af því ég kvaddi mér hljóðs, þá kann ég ekki við að falla frá orðinu og vil því fara nokkrum orðum um málið í heild sinni.
Hv. 2., þm. Reykv. kvað sig óánægðan með samkomulag mþn. og með útkomuna af starfi hennar í heild sinni. Ég get sagt það sama; ég varð að mörgu leyti fyrir vonbrigðum út af störfum n., en ég geri ráð fyrir, að þau vonbrigði séu nokkuð annars eðlis en vonbrigði hv. 2. þm. Reykv. Ég býst við, að hans vonbrigði hafi verið þau, að honum þyki ekki gengið nógu nærri skattþegnum ríkisins, en ég álít, að í flestum þeim till., sem komið hafa frá n., sé gengið feti lengra en heppilegt sé. Nú er uppi hjá fjölda manna sú skoðun, að ekkert sé að gera nema leggja á meiri og meiri skatta og sjálfsagt sé að ganga svo nærri í því efni sem frekast séu föng á, og í raun og veru þurfi þar ekki á annað að líta en það að ná sem mestu í ríkissjóð og sveitarsjóði frá einstaklingum þjóðfélagsins. Þetta kemur berlega fram í till. hv. þm. Ísaf., og það kemur ennþá berar fram hjá hv. 1. þm. N.-M., þar sem hann í frv. sínu um sveitargjöld vill ganga svo nærri borgurum landsins, að þessar greiðslur þeirra geti í einstökum tilfellum orðið nokkuð meiri en allur þeirra ágóði árið yfir.
Ég býst við, að menn geri sér það ekki almennt ljóst, hvert stefnir með þessu og hvernig málum þjóðarinnar, mundi bratt verða komið, ef þessi hugsun getur ekki tekið breyt. í þá átt, að menn geri sér grein fyrir, að ef þessu heldur áfram, þá er ekki að búast við því, að hér risi upp eða haldist við örugg fyrirtæki, sem ríkið geti byggt framtíð sína á. Þetta fyrirkomulag getur aðeins gengið hjá þeim þjóðum, sem búnar eru að búa svo vel um sig, að atvinnufyrirtækin þar eru rekin með þeirra eigin fé, eða þá máske að litlu leyti með fé, sem þeim er leigt með vægri borgun. Þar getur slík skattalöggjöf sem þessi staðizt. En hjá þjóð eins og okkur, ungu þjóðfélagi, þar sem hver einstaklingur verður að byggja afkomu eingöngu á mjög dýrum lánum, ef hann vill eitthvað að hafast, þar er slík skattalöggjöf bein tilraun til að kæfa fyrirtækin þegar í upphafi. Þegar gengið er svona nærri þeim á byrjunarstigi, er tæplega von, að þau geti átt sér mikla framtíð, en hætt við, að þau líði undir lok, áður en þau eru komin á legg. Ég held, að allir, sem eitthvað vilja hugsa fram í tímann, hljóti að sjá, að eitt af því versta, sem komið gæti fyrir okkar þjóðfélag, væri það, ef það yrði svo í framtíðinni, að menn þyrðu ekki að leggja fé í fyrirtæki vegna þess arna.
Ég kannast við, að það er mikil þörf fyrir ríkið og sveitarfél. að fá fé í sjóði sína, því að þau eru nú búin að binda sér þá bagga, sem ekki er gott að létta af. En ég álít samt ekki hyggilegt að ganga svo langt í því að taka skatta af einstaklingum þjóðfélagsins, að þeir geti aldrei komið fyrirtækjum sínum á fót. Um þetta eru auðvitað skiptar skoðanir. Þeir, sem halda því fram, að einstaklingsfyrirtæki eigi engan tilverurétt, hljóta að vera með því, að þannig sé farið að strax á byrjunarstigi einstaklingsfyrirtækjanna, að þau geti alls ekki komizt upp, og hin, sem þegar eru komin á fót, geti ekki þrifizt, því að það lendir auðvitað í því, að allt kemst yfir á hið opinbera, því að þá getur enginn einstaklingur fengizt við sjálfstæð fyrirtæki vegna skilningsleysis þeirra manna, sem um þessi mál eiga að fjalla. Ég veit ekki, hvort þeir, sem stóðu í sambandi við stofnun samvinnufélaganna eða stóðu að lögverndun þeirra fyrir ósanngjörnum álögum, hafa komið auga á þessa hættu, sem ég nú hefi bent á, þegar þeir fengu lagasetningu þá, sem verndaði þessi fyrirtæki frá því, að af þeim væri strax tekinn sá máttur, sem félögunum átti að skapast og átti að geta orðið þeim til liðs, sem í félögunum voru, en það virðist þó sýnilegt, að þeir hafa haft skilning á því, að ekki dugir að láta svo til ganga, að engar skorður séu settar í þessu efni hvað snertir einstaklingsfyrirtæki. Ég hefði vonazt eftir því, að n. í skattamálum sæi sér fært að taka til greina þær réttlátu till., sem komið hafa til greina áður og ræddar hafa verið nokkuð hér á hv. Alþingi, sem sé þær, að leggja skatt á eftir meðaltali tekna í yfir 3 ára tímabil, hinna síðustu. Hverjum manni hlýtur að vera það ljóst, að þessi regla er alveg nauðsynleg, sérstaklega viðvíkjandi heim fyrirtækjum, sem mikil áhætta fylgir. Það er blátt áfram nauðsynlegt, ef þeir, sem við slík fyrirtæki fást, eiga ekki að fá hið mesta ógeð á þeim. Í þessu sambandi vil ég koma með eitt eða tvo dæmi, sem ég þekki.
Árið 1929 er hér félag, sem hefir tekjuafgangskattskyldra tekna 86 þús. kr. Árið 1930 er tekjuhalli þessa sama félags 4 þús. kr., og þar að auki sá halli, sem sjálfsagt er að taka með í reikninginn, sem sé fyrning á öllum eignum félagsins, sem nemur eftir löglegum fyrningarfrádrætti 82 þús. kr. Þá hafa þessi tvö ár jafnað sig þannig upp, að reksturinn í þessi tvo ár er sama og núll. Á árinu 1930 greiddi hið sama félag í skatta til bæjar- og ríkissjóðs 60 þús. kr., sem afleiðing af hinu góða árferði 1929.
Eftir frv. því, sem hér liggur fyrir, ætti félagið að bæta við árstekjur sínar helmingi af sköttum og komst það þá í skattskyldar tekjur, sem auka mundu halla félagsins, í allt að 10 þús. kr. nú er það óumflýjanlegt, að sveitarfélagið þarf að fá sitt á þessu ári til að halda sér uppi, og má búast við, að það verði ekki minna en 30 þús. Allir sjá, að þegar svona er komið, þá er ekki álitlegt að ganga inn á næsta ár, sem má búast við að gefi ennþá meiri tekjuhalla, og verða þar á ofan að greiða þessa skatta áframhaldandi. Þeim, sem um þetta hugsa, hlýtur að hrjósa hugur við þessu og fara að efast um, að nokkuð sé eigandi við svona fyrirtæki, ef mögulegt væri að losna við þau og draga sig þar með út úr þeim erfiðleikum og áhættu, sem þeim er samfara.
Með þessu er samt ekki nema hálfsögð sagan. Það eru til margar ægilegri hliðar á þessu máli en þetta dæmi út af fyrir sig, sem þó sýnir það ljóslega, að hér er gengið mjög langt í skilningsleysi.
Þá vil ég benda mönnum á annað, sem ég býst við, að tekið hafi verið til greina við endurskoðun skattalaganna. Það hefir nokkuð verið rætt um hlutafélög og þeirra ástæður til skattgreiðslu. En þar kemur það fram, sem menn virðast ekki hafa komið auga á, að félögin. verða að greiða tvöfaldan skatt af eignum sínum. Ég skal þessu til sönnunar tilfæra eitt dæmi: Hlutafélag, sem safnað hefir fé í sjóð, t. d. varasjóð, er látið greiða eignarskatt af þeirri eign. Það á enga eign nema þennan sjóð, sem það hefir safnað, því að hlutaféð er vitanlega talið skuld. En það fyrirbrigði er í frv., að gert er ráð fyrir, að hlutabréf félagsins séu metin eftir eign félagsins. En nú á þetta félag ekkert nema þennan sjóð, og það er búið að borga skatt af honum. En svo kemur það fram í till. frá n., að meta skuli þessi hlutabréf og leggja sjóðseignina við verðmæti þeirra, og geta þau þannig orðið margföld í verði. Svo verður sá, sem hlutabréfin á, að greiða skatt af þessu öllu.
Þetta hefir þær afleiðingar í fór með sér, að þeir, sem annars geta greitt hluthöfum nokkurn arð, fá þarna ástæða til að hafa þá greiðslu hærri vegna hinna þungu skatta, sem á hlutabréfin eru lagðir. nú er það mjög óhollt afkomu félaganna, að þau greiði meiri arð en forsvaranlegt er. En þarna verður þessi skattalöggjöf beinlínis til þess að ýta undir þá vanhugsun, að ganga feti lengra en rétt er. Það er alveg sama, hvaða stétt er hér um að ræða að á meðan svona er farið með ágóðann af starfsemi félaga og einstaklinga, er ekki líklegt, að upp risi í landinu vel stæðar stéttir, sem gætu orðið og ættu að verða þjóðfélaginu til styrktar.
Í öðru lagi verða þessar álögur, eins og oft hefir verið tekið fram áður, til að ýta undir félögin og fyrirtækin að viðhafa eyðslusemi, en hugsa minna um að eflast og blómgast.
Það er merkilegt, að hv. þm. Ísaf. gengur nokkuð skemmra en frv. það, sem hér liggur fyrir, en það er samt ekki viða. Ég get vel tekið dæmi, sem sýnir, að hv. þm. hefir ekki hugsað málið og gengur því skemmra en hann ætlaði. En það má við hann virða, að ekki ætlast hann til, að greiddur sé skattur af skatti, svo sem gert er ráð fyrir í frv. n.