25.03.1931
Neðri deild: 33. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 217 í C-deild Alþingistíðinda. (711)
4. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Haraldur Guðmundsson [óyfirl.]:
Þó mér þyki það leiðinlegt, verð ég enn að reyna að leiðrétta misskilning hv. frsm. meiri hl. Hann finnur ekki aðra leið til að taka útsvörin um leið og tekjuskattinn heldur en að margfalda skattstigann með 4. En það liggur í hlutarins eðli, að ef taka á fjórfalt hærra gjald en áður eftir þeim reglum, sem tekjuskatturinn er tekinn eftir, þá verður að semja skattstigann upp á nýtt með tilliti til þess.
Hv. þm. telur alveg ófært að telja eftirgjöf skuldar, sem eignir eru til fyrir, til tekna. Ég aftur á móti tel það sjálfsagt. Ef svo er ekki, er mönnum auðvelt að komast undan tekjuskatti. Fyrst geta menn lánað hverir öðrum, og svo gefið skuldirnar upp. Trygging gegn því fæst ekki á annan hátt en þann, að krafizt sé sönnunar á því með gjaldþroti eða á annan hátt, að eignir séu ekki til fyrir skuldum þeim, sem upp eru gefnar. sé tekið fram undantekningarlaust, að skuldaeftirgjafir skuli ekki teljast til skattskyldra tekna, þá er mönnum þar með opnuð leið til að koma tekjum sínum undan skatti.