26.03.1931
Neðri deild: 34. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 218 í C-deild Alþingistíðinda. (714)

4. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Forseti (JörB):

Hv. þm. Dal. hefir óskað úrskurðar forseta um það, hvort ekki muni brjóta í bága við 36. gr. stjskr. brtt. meiri hl. fjhn. á þskj. 220, um að tekjuskattinn eftir G. og 7. gr. þessa frv. sé ríkisstj. heimilt að hækka eða lækka um ákveðna hundraðstölu, allt að 25% fyrir eitt ár í senn. Samskonar heimild er gert ráð fyrir að veita ríkisstj. til hækkunar eða lækkunar á eignarskatti eftir 15. gr. frv. Út af þessu vil ég taka þetta fram:

Lög nr. 2, 27. marz 1924, um heimild fyrir ríkisstj. til þess að innheimta ýmsa tolla og gjöld með 25% gengisviðauka, mæla svo fyrir:

„Á meðan gengi á £ er skráð í Reykjavík á 25 kr. eða þar yfir, veitist ríkisstj. heimild til þess að innheimta tolla samkv. tolllögum nr. 41 1921, vörutoll, vitagjald og afgreiðslu skipa samkv. 54. gr. aukatekjulaganna með gengisviðauka að upphæð 25%, þannig, að hver toll- eða gjaldeining hækkar um 25% og reiknast hver 1/2 eyrir og stærra brot úr tolleiningu sem heill eyrir, en minna broti er sleppt. Hækkun þessi nær þó ekki til vörutolls af kornvörum“.

Þessum lögum var breytt með lögum nr. 37, 27. júní 1925:

„Í stað orðanna: „á meðan gengi á £ er skráð í Reykjavík á 25 kr. eða þar yfir, veitist ríkisstj. heimild til þess að“, skal koma: „Ríkisstj. skal heimilt til ársloka 1927 að . . “.

Þessum l. var svo breytt 1927 (sjá lög nr. 38, 31. maí 1927 ):

„Í stað „til ársloka 1927“ í 2. málsgr. 1. gr. laganna komi: til ársloka 1928“. Þessum lögum var svo breytt með lögum nr. 36, 7. maí 1928: „Í stað „til ársloka 1927“ í 2. málsgr. 1. gr. laganna komi: til ársloka 1930“.

Þessum lögum var svo breytt á síðasta þingi, þannig að gert er ráð fyrir, að þau gildi til ársloka 1932 (sjá lög nr. 26, 19. maí 1930).

Ennfremur má benda á lög nr. 29, 28. nóv. 1919. Síðasta málsgr. 1. gr. þeirra 1. hljóðar svo:

„Stjórnarráð Íslands hefir heimild til að semja við stjórnir annara ríkja um vitagjald fyrir fiskiskip, er þaðan eru gerð út til fiskveiða hér við land“.

Þetta sama ákvæði var sett í lög 1911 um vitagjald (lög nr. 17, 11. júlí 1911). Með þessu er framkvæmdarvaldinu veittur réttur til að semja og ákveða þennan skatt.

Með lögum nr. 53, 7. maí 1928 var ríkisstj. heimilað að innheimta allan tekju- og eignarskatt með 25% viðauka til ársloka 1930. Stj. notaði að vísu ekki heimild þessa, en þingið hafði veitt stj. leyfi til þess. — Þá má minna á lög nr. 54, 15. júní 1926. 3. gr. þeirra laga hljóðar svo:

„Nú kemur í ljós, að vörutollur sá, er ræðir um í 6. eða 7. lið 1. gr., verður að teljast svo hár, að eigi sé sanngjarnt hlutfall milli hans og útsöluverðs vörunnar, og er stjórnarráðinu þá heimilt að færa niður tollinn, ef þess er óskað. Tollinn má þó aldrei færa lengra niður en svo, að hann sé eins og segir í 2. lið 1. gr. Stjórnarráðið skal um hver áramót birta í B-deild Stjórnartíðindanna skrá um ívilnanir þær, sem á næsta ári á undan hafa verið veittar samkvæmt þessari grein“.

Um mörg ár og mörgum sinnum hefir þessi heimild, sem veitt er í þessari grein, verið notuð.

Og enn má benda á lög nr. 46, 15. júní 1926, um útsvör, 3. gr. 1. fyrri málsgr.: „Að því leyti, sem aðrar tekjur sveitar hrökkva ekki til að greiða gjöldin, skal jafna niður á gjaldþegna hennar því, er á vantar, að viðbættum 5–10%, og heitir gjald það útsvar. Það má ekki nokkru sinni nema meiru en meðaltali útsvara í sveitinni 3 síðustu árin, að viðbættum fimmtungi, nema sýslunefnd veiti hreppsnefndum til þess samþykki sitt, en atvmrh. bæjarstjórnum“.

Með þessum ákvæðum er sveitarvöldum veitt heimild til þess, með samþykki æðri stjórnarvalda, að láta skatt til sveitar- og bæjarsjóða fara fram úr því, sem lögin að jafnaði gera ráð fyrir. Og sú heimild til hreyfingar á skatti, sem ráð er fyrir gert með ákvæðum hinna annara laga, sem nú voru nefnd, er einnig ákveðin í þeim lögum sjálfum, sem sætt hafa þeirri meðferð, sem gildir um almenn lög, og Alþingi með því fengið framkvæmdarvaldinu í hendur rétt til þess að innheimta skattinn misháan, eftir því sem það metur nauðsyn til slíkrar skatthreyfingar. Og hefir þetta verið gert af framkvæmdarvaldinu um allmörg undanfarin ár.

Samkv. eðli þessa máls og að fengnum slíkum fordæmum, sem ég nefndi, tel ég orðalag 73. gr. stjskr. um, að skattamálum skuli skipa með lögum, samanborið við 36, gr. hennar, ekki svo einskorðað, að ég telji mér fært sem forseti að taka fram fyrir hendur þingsins í þessu efni, heldur mun ég láta atkvgr. skera úr um vilja þess. Mönnum kann að vísu að virðast svo, að ekki sé eðlilegt, að framkvæmdarvaldinu sé heimilað að hækka eða lækka skattinn innan takmarka laganna, en fjárveitingavaldinu sé slíkt óheimilt með ákvæði í fjárlögum, en þess ber að gæta, að með slíku fjárlagaákvæði er löggjafarsvið fjárlaga fært út fyrir það svið, sem þeim er ætlað að ná samkv. ákvæðum stjskr.