20.02.1931
Neðri deild: 5. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 360 í C-deild Alþingistíðinda. (733)

10. mál, bifreiðaskattur

Fjmrh. (Einar Árnason):

Einn af þeim útgjaldaliðum, sem mest hafa hækkað á síðustu árum, er viðhald vega. Tvennt ber til þess. Fyrst það, hve vegakerfið hefir vaxið óðfluga, og svo hitt, að umferð bifreiða hefir margfaldazt á flestum vegum, og það er staðfest, að aðalskemmdirnar stafa af þeim. Líti maður á kostnaðinn um fimmtán ára bil, sest, að hann hefir tvöfaldazt, og þó vaxið langmest síðustu árin. Árið 1929 er hann hátt á fimmta hundrað þúsunda og sjálfsagt hálf millj. síðasta sumar, þó að ekki sé búið að gera það upp nákvæmlega. Ef viðhaldið á að vera í sæmilegu lagi, má ekki búast við, að hægt verði að komast af með minna en hálfa millj. á ári, og sennilega fer það hækkandi, eftir því sem vegakerfið stækkar og umferð vex. Því er brýn nauðsyn að afla ríkissjóði tekna, sem beinlínis ganga til. viðhalds vega í framtíðinni. Þetta frv. miðar að því að afla þeirra tekna að nokkrum hlut. Þar er stefnt á svipaða leið og nágrannaþjóðir fara.

Gert er ráð fyrir, að skattlagt sé í þrennu lagi, á benzín, gúmmi og þunga bifreiðanna. Þó skulu vöruflutningabifreiðar vera undanþegnar þungaskattinum. Það er gert ráð fyrir, að tekjur af þessu verði 300 þús. kr., eða fullum 200 þús. kr. meiri en bifreiðaskatturinn, sem nú er í lögum, hefir gefið í ríkissjóð.

Eitt nýmæli er í frv.; það er ætlazt til, að dálítill hluti af skattinum gangi til sýsluvegaviðhalds sérstaklega. Þess er ekki vanþörf, og margir sýsluvegir eru mjög fjölfarnir af bifreiðum.

Það má að sjálfsögðu deila um, hve hár skatturinn skuli vera. En á það er að líta, að ríkissjóður hefir mikla þörf, og þarfir veganna fara vaxandi. Einnig má líta á hitt, að þegar vegir eru bættir, minnkar kostnaður bílanna í hlutfalli við vegalengdir, sem þeir fara. Þeir eyða minni tíma, minna benzíni og slíta minna gúmmi á hjólum, auk þess sem bifreiðin endist lengur.

Þetta frv. er aðallega samið af meiri hl. mþn. í skatta- og tollamálum eftir mínum tilmælum, og ég ætla, að vegamálastjóri hafi athugað það fyrir sitt leyti. Frv. fylgir ítarleg grg., sem ætti að vera nægileg skýring á einstökum greinum þess. Ég sé því ekki ástæðu til að fara út í þær, en legg til, að frv. verði vísað til fjhn.