26.03.1931
Efri deild: 34. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 66 í B-deild Alþingistíðinda. (74)

25. mál, bókasöfn prestakalla

Frsm. (Guðrún Lárusdóttir):

Nál. 259 ber með sér álit meiri hl. n., svo ég ætla ekki að vera langorð. Það mun hafa vakið góðar vonir allra kirkju- og kristindómsvina í landi voru, er hæstv. stjórn skipaði millþinganefnd til að íhuga kirkjumálin, og það því fremur, þar sem meiri hluti nefndarinnar var skipaður þekktum áhugasömum kirkjunnar mönnum, sem búast mátti við að störfuðu rækilega að þessum málum. Sú varð og raunin á. Frv. þau, sem liggja fyrir þinginu frá kirkjumálanefndinni, bera þess vottinn. En nú kemur til þingsins kasta um það, hvort þessar vonir rætast.

Ég verð að segja það um sjálfa mig, að ég varð fyrir vonbrigðum, þegar ég sá, að hv. Nd. hafði fært niður styrkinn til bókakaupa úr 10 þús. kr. í 4000. Mörgum kann að virðast, sem 10 þús. kr. séu mikið fé, en þegar það er athugað, að þeim er skipt í marga staðina, þá verður ekki mikið, sem kemur í hvern stað. En það, sem n. virtist þó aðalatriðið, var það, að fá viðurkenningu þessarar hv. deildar fyrir réttmæti frv. Enginn mótmælir því, að þörf er fyrir presta landsins að hafa gott bókasafn. Er eiginlega óþarfi að tala um það; hverjum hugsandi manni er þetta nauðsynlegt, og þarf ekki annað en að vísa til gamals málsháttar: „Betra er berfættum en bókarlausum að vera“. Það hefir einnig löngum verið gert í hefndarskyni að svipta menn bókum sínum, og vil ég í því sambandi benda á það, hvernig Norðmenn fóru með Hauge 1804, þegar þeir lokuðu hann inni í fangelsi og sviptu hann öllum bókum, öðrum en níðritum um þau mál, sem honum voru hjartfólgnust.

Hv. Nd. hefir sýnt, að hún vill styrkja þetta fyrirtæki prestanna. Annars er ætlazt til, að bókasöfnin komi fleirum að notum en prestunum. Í 2. gr. frv. stendur: „Til bókasafna prestakalla skuli einkum keyptar bækur guðfræðilegs og heimspekilegs efnis. Þó má og kaupa til safnanna almennar fræðibækur og úrvals skáldrit“, o. s. frv. Þetta er gert með tilliti til þess, að prestum er gert að skyldu skv. 9. gr. að lána bækur heim safnaðarmönnum, sem þess óska, og sýnir þetta, að þessar bækur eru látnar prestunum í té með það fyrir augum, að aðrir geti notið þeirra líka.

Vitanlegt er það, að í kaupstöðum er oft kostur góðra bóka, svo að það virðist sem prestum sé þar ekki eins mikil horf á bókasafni fyrir sig og söfnuðina. En þar, sem bókasöfn eru ekki fyrir hendi, er ekki annað að fara en í það litla bókasafn, sem hér er verið að tala um að stofna.

Það hafa komið fram brtt. frá hv. minni hl., en þær gera hvorki til né frá, annað en að tefja fyrir málinu, og finnst mér það illa farið. Það, sem vakti fyrir meiri hl., var einmitt að tefja ekki fyrir framgangi málsins. En þó menn væru ekki ánægðir með það ákvæði í 4. gr. frv., að kostnaðurinn af starfi bókanefndar skuli greiddur af bókakaupafénu, þá var engan veginn til þess ætlazt, að þetta gæti orðið að arðberandi atvinnu fyrir neinn, heldur gert ráð fyrir því, að kosnir væru þeir einir, sem með óeigingirni vildu vinna fyrir þetta mál.

Það er ekki ástæða til að orðlengja þetta frekar, og ég læt hér staðar numið með þeirri ósk, að frv. nái fram að ganga.