08.04.1931
Neðri deild: 41. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 370 í C-deild Alþingistíðinda. (752)

14. mál, Brunabótafélag Íslands

Héðinn Valdimarsson:

Ég skrifaði undir nál. með fyrirvara. Og ástæðan var sú, að ég vildi, að betur væri búið um stjórn félagsins en gert er í þessu frv. það er stórt fyrirtæki og mikið fé, sem einn maður á nú að sjá um að öllu leyti, ráða hvernig féð er lánað út, hvernig það er innheimt og hvernig þess er gætt. Eftir lögunum um tryggingar á sami maður að vera forstjóri fyrir Brunabótafélaginu og Slysatryggingarfélaginu og síðar fyrir Samábyrgð ríkisins og fleiri tryggingarstofnunum, ef til kæmi. Þá er ekkert eðlilegra en að sama stjórn nái að öðru leyti einnig til allra þessara stofnana. Ég álít, að setja þyrfti tvo gæzlustjóra, sem forstjórinn bæri undir allar meiri háttar ráðstafanir.

Þetta segi ég ekki af neinu vantrausti til þess manns, sem nú hefir forstöðuna, heldur af því, að mér finnst óafsakanlegt, að við svo stórt fyrirtæki sé ekkert eftirlit af hálfu þess opinbera. Ég hugsa mér að bera fram brtt. til að bæta úr þessu við 3. umr. Og ég vil geta þess, að núv. forstjóri, hv. 1. þm. N.- M., sem einnig er í nefndinni, virtist ekki hafa neitt á móti því fyrirkomulagi, þótt hann kæmi ekki sjálfur. með slíka brtt.