08.04.1931
Neðri deild: 41. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 375 í C-deild Alþingistíðinda. (758)

14. mál, Brunabótafélag Íslands

Sigurður Eggerz [óyfirl.]:

Ég vildi aðeins taka skýrar fram það, sem ég drap á í fyrri ræðu minni, að ég álít ákvæði 7. gr. frv. athugaverð fyrir Brunabótafélagið, að því er snertir lausafjártryggingingar. Í niðurlagi gr. er félaginu heimilað að annast tryggingar á lausafé einstaklinga, allt að 6–9–12 þús. kr., án þess að það fái endurtryggingu hjá öðrum tryggingarfélögum. Það eru engar takmarkanir fyrir því, hversu háar þessar lausafjártryggingar mega vera samtals. Þær gætu hæglega skipt milljónum. Ég var sannast að segja steinhissa á þessari heimild, og get ekki betur seð en að það sé beinlínis glæfralegt fyrir félagið að fara út á þessa braut, ef ekkert mark er sett um það, hversu miklu þessar tryggingar mega nema. mér sýnist ekkert vit í því, að þessar tryggingar samanlagðar megi nema meira en svo sem 400 þús. kr. til 1/2 millj. meðan þær fast ekki endurtryggðar. þetta vildi ég aðeins taka skýrar fram n. til athugunar, svo hún gæti gert brtt. um það fyrir 3. umr., ef henni sýndist. Að öðrum kosti mun ég gera brtt. um þetta á þá leið að setja hámark eins og ég hefi bent á.