26.03.1931
Neðri deild: 34. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 243 í C-deild Alþingistíðinda. (772)
5. mál, verðtollur
Jón Auðunn Jónsson [óyfirl.]:
Ég vil að svo stöddu ekkert um það segja, að hve miklu leyti ég mun geta fylgt þessu frv., en mér finnst, eins og hv. þm. Borgf., að við gætum hlítt við það fyrirkomulag, sem nú er í þessum efnum. Með því fyrirkomulagi, sem þetta frv. gerir ráð fyrir, verður tolleftirlitið erfiðara, einkum í hinum smærri héruðum. Um flokkun þá, sem tekin er upp í frv., mætti margt segja; t. d. eru í 20% flokknum margar þær nauðsynjar, sem við getum ekki framleitt sjálfir nóg af, en getum þó hinsvegar ekki án verið. Vil ég í þessu sambandi benda á þær vörutegundir, sem hv. 2. þm. Reykv. tekur upp í brtt. sína. Er mikill hörgull á ýmsum þeim vörutegundum, svo sem ávöxtum, grænmeti, eggjum o. s. frv., og getum við ekki án þeirra verið. (PO: Það er hægt að framleiða nóg af þessu). Það er ekki rétt hjá hv. þm. Borgf. Þó að hægt sé að framleiða það mikið, að það fullnægi þörfum Reykjavíkur að einhverju leyti, er vitanlegt, að í flestum árum komumst við jafnvel ekki svo langt, og á meðan svo er, er mjög varhugavert að setja slíka hátolla á brýnustu þarfir manna, t. d. þeirra, sem magaveikir eru. Það er mín skoðun, að bættar samgöngur verði áhrifamestar í þá átt að auka innlenda framleiðslu. Að fara að halda uppi tollvernd í því augnamiði nær engri átt, því að það er á misskilningi byggt, ef menn halda, að það verði til þess að atvinnuvegirnir beri sig betur. Okkur Íslendingum ætti að vera sú ósk heitust að losna við alla verndartolla, því að það er eðlilegast og öllum þjóðum fyrir beztu. Þar sem land er vel fallið til kornræktar, á að rækta korn, en ekki par, sem korn þrifst illa. Það er vitanlegt, að Norðmenn eyddu mörgum millj. kr. við það að reyna að tollvernda kornrækt þar í landi, því að slíkt gat aldrei borið sig og varð líka til stórskaða fyrir þjóðina. Og hvað okkur Íslendinga snertir, er okkur hagkvæmast í viðskiptum okkar við aðrar þjóðir að hafa ekki verndartolla, nema þá að mjög litlu leyti. Við þurfum flestar vörur að okkur að flytja, og ætti það því að vera okkur fagnaðarefni, ef verndartollastefnan yrði kveðin niður.
Að lokum vildi ég mælast til þess við hæstv. forseta, að brtt. hv. 2. þm. Reykv. yrði borin upp í tvennu lagi, þannig, að tveir fyrstu málsl. yrðu bornir upp sér og síðari hl. till. sér. Hefi ég átt tal um þetta við hv. 2. þm. Reykv., og hann hefir fyrir sitt leyti fallizt á þetta. mér þykir það hjákátlegt í meira lagi, þegar verið er að tala um verðtoll af kjöti, bar sem svo er ástatt, að ekki má flytja það inn í landið, nema samkv. leyfi ríkisstj. Líkt er að segja um reiðhjólin. Þau eru ekki notuð nema til nauðsynlegra ferðalaga, svo sem af verkamönnum, sem eiga langt að sækja til vinnu. Er ekki rétt að vera að skatta slíkar nauðsynjar með 20% tolli.