26.03.1931
Neðri deild: 34. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 245 í C-deild Alþingistíðinda. (773)
5. mál, verðtollur
Haraldur Guðmundsson [óyfirl.]:
Það hefir verið rætt nokkuð um réttmæti verndartollastefnunnar og aðrar svipaðar ráðstafanir í sambandi við þetta frv. Ég fyrir mitt leyti er sammála þeim mönnum, sem telja verndartolla óviturlega og rangláta, en skal þó ekki segja margt um það. Þó vil ég benda á það, að meginið af þeim tollum, sem teknir eru upp í þetta frv., hefir ekki einu sinni það sér til afsökunar, að vera verndartollar.
Í sambandi við það, sem hv. 1. þm. N.M. var að segja um óhófsvörur, vil ég benda honum á, að ég hefi eigi lagzt á móti að tolla þær hátt. En ef hann telur, að þeirri reglu sé fylgt í þessu frv., þá hefir hann harla einkennilega hugmynd um, hvað sé kallað óhófsvara. T. d. má nefna, að í 9. gr. b-lið eru leir- og glervörur skattlagðar auk 11/2 % með 20% verðtolli. Þessar vörur mun hv. þm. telja óhófsvörur, en ég er honum ekki sammála í því. Ég tel, að í c- og d-lið séu vörur, sem ekki sé hægt að komast hjá að nota. Sumar af þessum vörum er hægt að framleiða hér, en aðrar verðum við að kaupa að.
Í sambandi við „ágæti“ verndartollanna vil ég benda á, hvað hefir verið að gerast hér í skjóli þeirra nú undanfarið. Smjörlíkisgerð er orðin umfangsmikill iðnaður hér á landi, og af smjörlíki er afarlítið flutt inn, samanborið við það, sem áður var. Tollurinn hefir verið kr. 1.80 af hverjum 50 kg., þar með reiknaðar umbúðir. Í skjóli hans hafa risið upp margar smjörlíkisgerðir, tvær t. d. hér í Rvík, og eru þær reknar með miklum gróða. Verndartollurinn verður til þess að halda uppi óeðlilega háu verði á þessari voru.
Á síðasta ári risu upp tvær nýjar verksmiðjur. Dettur engum í hug, að þessa sé þörf vegna neytenda. Neyzlan er ekki meiri en svo, að tvær verksmiðjur gætu vel fullnægt eftirspurninni. Það er gróðalöngun, sem lokkað hefir menn til þess að leggja fé sitt í slík fyrirtæki, en þær eru ekki komnar upp vegna nauðsynjar. Og það er eftirtektarvert, að þrátt fyrir þessa fjölgun á smjörlíkisgerðum og stórfé, sem lagt er í auglýsingar, hefir verð á smjörlíki ekki lækkað um einn eyri, og er líka tæpast við því að búast, þar sem kostnaðurinn verður meiri að tiltölu hjá svo mörgum verksmiðjum. — Auk þessara verksmiðja hér í Rvík eru líka slíkar verksmiðjur á Ísafirði og Akureyri, ein á hvorum staðnum. Samkv. þessu frv. á að hækka tollinn upp í 111/2%, í stað þess að hann er nú um 4 aurar af kg. Skatturinn meira en tvöfaldaður. Þar með er skapað svigrúm til þess að halda áfram á sömu braut, og geta menn gert sér hugmynd um, hver afleiðingin muni verða.
Í sambandi við þetta má benda á ölgerð. það þótti vera mikill gróði af þeirri ölgerð, sem hér hefir starfað, og afleiðingin er sú, að önnur er nú komin upp og sú þriðja mun vera á leiðinni — og stefnir þar allt að sama marki. — Sama sagan endurtekur sig með kaffibrennslu, og svona mætti lengi telja. Verndartollarnir verða því til þess að halda uppi óhæfilega háu vöruverði í landinu, óhæfilegum kostnaði við framleiðsluna.
Hv. 1. þm. N.-M. sagði, að maður gæti látið vera að kaupa óhófsvörur. Í till. mínum og hv. 2. þm. Reykv. er ekki farið fram á að lækka tolla á óhófsvörum. Það er ekki nema blekking ein, að í frv. stj. sé verið að tolla óhófsvörur.
Ég hefi hér skýrslu hagstofunnar um matvælakaup 5 manna fjölskyldu í Rvík. Eftir þessari skýrslu þarf hver meðalfjölskylda að kaupa garðávexti fyrir 133 kr. á ári. Eftir till. n. á að tolla kartöflur með 111/2% og annað grænmeti með 21%. Það mun verða um 15% til uppjafnaðar, eða ca. 20.00 kr.
Meðalkaup á sykri 72.80, par af 55% verður ca. 40.00 kr.
Kaffi og kaffibætir 110.90, þar af 50% verður ca. 55.00 kr.
Smjör og feiti 279.37, par af 11/12% verður ca. 32.20 kr.
Ostar, egg 80 kr., þar af 211/2 % verður ca. 17.20 kr.
Eldsneyti, ljós 188 kr., þar af 61/2% verður ca. 12.20 kr.
Af þessum 6 vörutegundum þarf fjölskylda að greiða í toll ca. 177.60 kr. Er þá ótalið enn fjöldinn af nauðsynjum, svo sem öll búsáhöld með 211/2% og fatnaður með 111/2 %, öll húsgögn o. fl.
Hér er því um tvennt að ræða í frv. Í fyrsta lagi að auka enn á þá verndartolla, sem fyrir eru. Í öðru lagi að leggja hóflausa tolla á vörur, sem ómögulegt er að vera án, en ómögulegt að framleiða í landinu. Með þessu er verið að auka dýrtíðina í landinu stórkostlega frá því, sem þyrfti að vera.