23.02.1931
Neðri deild: 7. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 384 í C-deild Alþingistíðinda. (789)
18. mál, samgöngubætur og fyrirhleðslur á vatnasvæði Þverár og Markarfljóts
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Ég sé ekki ástæðu til að segja nema örfá orð út af ræðum þeirra hv. þm. Rang. og hv. 3. þm. Reykv.
Hv. þm. Rang. spurðust fyrir um það, hvenær byrjað yrði á þessum framkvæmdum. Þegar Alþingi er búið að samþ. þetta frv., sem væntanlega verður, verða ekki nema 1–2 mánuðir til kosninga. Finnst mér það eðlilegt og sjálfsagt, að það verði sú stj., sem fer með völd eftir kosningar, sem tekur ákvarðanir um framkvæmd þessa máls. Hinsvegar er það mín skoðun, að þetta sé eitt af því fyrsta, sem framkvæma eigi í samgöngumálunum, þegar ástæður eru fyrir hendi. En hvenær það verður gert, álít ég, að ekki sé hægt að ákveða, fyrr en eftir næstu kosningar.