23.02.1931
Neðri deild: 7. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 385 í C-deild Alþingistíðinda. (795)
18. mál, samgöngubætur og fyrirhleðslur á vatnasvæði Þverár og Markarfljóts
Einar Jónsson:
Hæstv. atvmrh. sagði, að ef byrjað væri á framkvæmdum fyrir kosningar, þá væri verið að leika leik frammi fyrir kjósendum. En það verð ég að telja leik leikanna, ef á að samþ. þetta frv. án þess að byrja á framkvæmdum á næsta vori, þar sem Rangárvallasýsla þarfnast bráðari samgöngubóta en nokkur önnur sýsla á landinu.