23.02.1931
Neðri deild: 7. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 387 í C-deild Alþingistíðinda. (803)

18. mál, samgöngubætur og fyrirhleðslur á vatnasvæði Þverár og Markarfljóts

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Ég kannast ekki við, að ég hafi ekki borið þetta mál undir kjósendur. (SE: Ég var ekki að segja það). Hv. 2. þm. Rang. for með frv. þetta austur, og gat því skýrt frá því á fundum þeim, sem hann hélt þar.

Um hitt atriðið hefi ég talað áður og sé ekki ástæðu til þess að fjölyrða meira um það.