09.04.1931
Neðri deild: 42. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 252 í C-deild Alþingistíðinda. (804)
5. mál, verðtollur
Pétur Ottesen:
Ég vil aðeins segja örfá orð út af því, sem hv. þm. N.-Ísf. sagði um brtt. á þskj. 302. Hv. þm. sagði, að hér væri verið að ganga inn á hættulega verndartollastefnu. Það var á honum að heyra, að hann teldi samþykkt þessara till., sem gera lítilsháttar tilraun til að styðja að því, að meira verði notuð innlend framleiðsla í landinu, mundu hafa þær afleiðingar, að aðrar þjóðir myndu setja toll á okkar vörur. Ég veit nú ekki betur en að þær þjóðir, sem við seljum aðalframleiðsluvörur okkar, leggi toll á þær. Það er því svo sem ekki því að heilsa, að við sleppum við toll á okkar vörum í þeim löndum, sem þeirra er neytt. Það er aðeins nýr fiskur seldur til Englands, sem er undanþeginn tolli. En þó eru nú háværar raddir uppi þar um að setja á verndartolla. Annars er sá tollur, sem við leggjum til að settur verði á mjólk, sambærilegur við þann toll, sem nú er á þessum vörum samkv. verð- og vörutolli. Hér er því ekkert að óttast. Hið eina, sem gæti líka af þessu leitt, er ofurlítill ávinningur fyrir landsmenn sjálfa.
Ég þarf þá ekki að svara hv. þm. fleiru. En ég vil benda því til hæstv. forseta, að mér skilst, að hann hljóti að vísa frá atkvgr. c.-liðnum í brtt. 299, þar sem alveg samskonar till. var felld við 2 umr. þessa frv. Ég hygg, að ekki sé leyfilegt að taka upp aftur sömu till. og felld hefir verið, hvorki á sama fundi né á næsta fundi á eftir.