13.04.1931
Neðri deild: 45. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 402 í C-deild Alþingistíðinda. (826)

19. mál, nýr vegur frá Lækjarbotnum austur í Ölfus

Frsm. (Magnús Torfason):

Þá er þó svo langt komið, að svo virðist, sem nokkra von megi gera sér um að Austursveitirnar fái sæmilegan vetrarveg til Reykjavíkur. — Þetta mál hefir staðið lengi yfir og hafa margfalt sterkari kröfur verið um. það gerðar en þær, sem gert er ráð fyrir í þessu frv. Þar er gert ráð fyrir um 700 þús. kr. kostnaði við þennan vetrarveg. En áætlað var, að járnbraut mundi kosta nær 7 millj. kr. Er þetta því mikil niðurfærsla frá því, sem áður var. Þessi vegarbót er líka langt frá því að vera fullkomin. Og við Austanhéraðsmenn getum eigi annað en litið svo á, að við í framtíðinni eigum eftir að fá fullkomnari veg en þetta. En í svip verðum við að beygja okkur fyrir ofureflinu.

Samgmn. — og í henni erum við tveir Austanhéraðsmenn — hefir lagt til, að frv. þetta nái fram að ganga. Og þótt við hefðum kosið annað meira og betra en þetta, þá verðum við þó að beygja okkur fyrir því, sem er okkur of jarl. Járnbrautarmálið hefir svo lengi verið á milli tannanna á báðum stærstu flokkum þingsins, að enginn von er um, að það nái fram að ganga á næstu tímum. En sú breytta aðstaða, sem orðin er á framleiðsluháttum okkar fyrir aðstoð þings og stjórnar, gerir það að verkum, að okkur mundi vera afar mikill hagur að bættum vetrarsamgöngum við Reykjavík. Nú eru þær hreint ekki viðunandi. Og það er sýnilegt, að þau þrifa- og framfarafyrirtæki, sem stofnað hefir verið til fyrir austan, koma ekki að tilætluðum notum, nema bættur sé vetrarvegurinn til Rvíkur og þeim mestu örðugleikum, sem nú steðja að þeim fyrirtækjum, sé þar með rutt úr vegi. Ég þarf nú ekki að lýsa þessari leið. Hún er svo kunnug orðin og flestir hv. þm. hafa farið hana. Ætti líka betur við að tala um það nánar við 3. umr. Einkum er óþarfi að fara langt út í þetta mál nú, þar sem brtt. þær, sem fyrir liggja, eru ekki mikilsverðar. Brtt. eru fjórar alls. Þrjár þeirra eru engar efnisbreytingar og alveg sjálfsagðar. Ein, sú þriðja í röðinni, er efnisbreyting. Þó er nú um þá efnisbreytingu það að segja, að hún fer ekki fram á annað en að gefin sé heimild til að breyta núverandi vegi og laga hann, eftir því sem hægt þykir að undangenginni rannsókn.

Í grg. frv. er ráð fyrir því gert, að vegurinn verði síðar malbikaður og breikkaður úr 3 mtr. í 5 mtr. Er þá kostnaðurinn áætlaður 1200 þús. kr. og er það mikið fé. En þess ber að gæta, að þarna er um mikla flutninga að ræða, sem fara vaxandi ár frá ári. Þess vegna er það, að þótt þessi vetrarvegur komi, þá er hin fyllsta þörf á sæmilegum sumarvegi, sem sé akfær sem lengst. En eins og kunnugt er, er Hellisheiðarvegurinn afarilla lagður og hefir vegamálastjóri því breytt honum talsvert, en það hefir einnig komið til orða að breyta honum meira, og með það fyrir augum er 3. brtt. við 5. gr. borin fram, þar sem lagt er til, að aftan við gr. bætist: „en sýni rannsókn, að hagkvæmara verði að leggja veginn sem beinasta leið yfir heiðina, en malbika þennan kafla, skal það gert“. Ég hefi átt kost á að lesa erindi frá vegamálastjóra, þar sem hann leggur heldur á móti þessari brtt. Hann segir þó ekki meira en að hann áliti hana meinlausa og heldur til lýta á frv. Ég veit ekki, hvort vegamálastjóri er í samræmi við hæstv. atvmrh. um þetta atriði og væri því gott, að það kæmi fram. En í áliti vegamálastjóra virðist hann hafa gert ráð fyrir, að hér væri um vetrarveg að ræða, en svo kemur upp úr dúrnum, að hér er aðeins um sumarveg að ræða, sem breyta þarf á köflum, því að austast á heiðinni eru kaflar, sem góðir mega heita og oftast færir. Annars veit ég ekki, hvernig vegamálastjóri hefir fengið þessa flugu í höfuðið, en það upplýsist kannske í umr.

Ég þykist þá ekki þurfa að fara fleiri orðum um frv. að sinni, en vil pakka öllum, sem unnið hafa að því að koma því áfram og vænti, að það fái að ganga til 3. umr. Eins og nál. ber með sér, hafa sumir nefndarmenn skrifað undir það með fyrirvara, og býst ég við, að þeir geri grein fyrir honum.