19.02.1931
Neðri deild: 4. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 418 í C-deild Alþingistíðinda. (847)

20. mál, búfjárrækt

Magnús Guðmundsson:

Ég verð að viðurkenna, að ég hefi ekki enn kynnt mér þetta frv. til hlítar, en vil einungis við þessa umr. leggja þá spurningu fyrir hæstv. atvmrh., hver áhrif samþykkt þessa frv. hafi á starf Búnaðarfélags Íslands. mér finnst það hljóti að rýra talsvert svið þess, ef öll afskifti af fjárframlögum til búfjárræktarinnar á að taka af því. Þetta skiptir miklu máli, og vil ég biðja hæstv. ráðh. um frekari upplýsingar. Það virðist og orka nokkurs tvímælis, hvort ráðunautar Búnaðarfélags Íslands verða áfram starfsmenn þess eða ríkisins. Ég geri ráð fyrir, að búið sé að taka afstöðu til þessa, bæði í stjórn Búnaðarfélagsins og á búnaðarþinginu.