19.02.1931
Neðri deild: 4. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 418 í C-deild Alþingistíðinda. (848)

20. mál, búfjárrækt

Fors:

og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson): Frv. þetta ber það greinil. með sér, að öll framkvæmd þess er falin Búnaðarfélagi Íslands. Þess vegna er ekki til þess ætlazt, að starfsvið þess rýrni á neinn hátt við samþykkt þessa frv. Sama er að segja um ráðunautana; þeir verða framvegis starfsmenn Búnaðarfélags Íslands, svo sem verið hefir hingað til. Hefir og þetta frv. fengið eindregin meðmæli búnaðarþings.