19.02.1931
Neðri deild: 4. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 419 í C-deild Alþingistíðinda. (852)
20. mál, búfjárrækt
Magnús Guðmundsson:
Já, það á þó í öllu falli að greiða kostnaðinn við framkvæmd þessara laga beint úr ríkissjóði. Þess vegna skilst mér, að fjárveitingin til Búnaðarfélagsins minnki að því skapi. Ég tel það hæpið að láta þá menn fara með fé ríkisins, sem ekki eru embættismenn ríkisins, heldur einstaks félagsskapar, eins og í þessu tilfelli Búnaðarfélags Íslands.