30.03.1931
Neðri deild: 37. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 477 í C-deild Alþingistíðinda. (883)
20. mál, búfjárrækt
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Ég vil frekar skoða það spaug en alvöru, sem hv. þm. Barð. sagði í upphafi ræðu sinnar. Hann fór að gera að umtalsefni einhver veðrabrigði, sem orðið hefðu í þessu máli. Ég held nú, að hv. þm., sem elskar friðinn, ætti heldur að vera glaður, þegar samkomulag hefir fengizt um þetta mál. En hvorki hv. landbn. eða ég höfum snúið við blaðinu. Fyrir tilmæli voru brtt. við vissa kafla frv. teknar aftur við 2. umr. og geymdar til 3. umr. Var það gert með það fyrir augum, að samkomulag gæti náðst um þessar brtt. nú er sú vinna unnin.
Þá var það hv. þm. Dal., sem spurði um það, hvort bústofnslánadeildin væri stofnuð. Ég get svarað því sama og ég hefi áður sagt, að ég hefi lagt ríka áherzlu á, að hún væri stofnuð sem fyrst. Og ég hefi synt hug minn til þessa í frv. til fjárl. fyrir 1932, þar sem gert er ráð fyrir 50 þús. kr. fjárveitingu í þessu skyni. Þar er einnig jafnhá upphæð áætluð vegna smábýlanna. — Frá stj. hálfu er það því ákveðið, að þessi deild verði stofnuð við allra fyrsta tækifæri. Vona ég, að framkvæmd þess dragist ekki lengi úr þessu og að deildin verði stofnuð í síðasta lagi í vor eða sumar.