18.02.1931
Neðri deild: 3. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 482 í C-deild Alþingistíðinda. (900)

27. mál, kirkjur

Sigurður Eggerz:

Ég verð að játa það, að ég man ekki allt það, sem gerðist í minni stjórnartíð, enda skal ég ekkert fullyrða um það, sem hæstv. dómsmrh. beindi til mín. Hitt þykir mér undarlegt, að annar af stuðningsflokkum stj. skuli fá stjfrv. á undan hinum og ég finn sárt til með sessunaut mínum, hv. 2. þm. Reykv., út af því ranglæti, sem stj. hefir sýnt honum með þessu.