18.02.1931
Neðri deild: 3. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 486 í C-deild Alþingistíðinda. (908)
27. mál, kirkjur
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Það er ekki undarlegt, þó að raddir komi fram um þetta efni. En ástæðurnar fyrir því, að frv. stjórnarinnar hafa ekki verið send til þingmanna, eru einkum tvær. Önnur er sú, að frv. eru oftast ekki fullprentuð fyrr en skömmu fyrir þing. Hin ástæðan er sú, að í 21. gr. stjórnarskrárinnar er gert ráð fyrir, að konungur geti lagt fram frv. Það hefir ekki þótt viðkunnanlegt að gera efni frumvarpa opinbert, og að blaðamáli, fyrr en frumvörpin hafa verið lögð fyrir konung. Hinsvegar stendur öllum opið að fá vitneskju um efni þeirra, t. d. með því að gera fyrirspurnir. Frv., sem landbúnaðinn snerta, hafa verið lögð fyrir Búnaðarþingið. En þess er jafnan getið, er svo stendur á, að frv. sé ennþá eigi opinbert mál. Hinsvegar mun ég eigi setja mig upp á móti því, að nýr siður verði upp tekinn, ef það er fært.
Mér kemur það undarlega fyrir, sem hv. þm. Barð. sagði, að bókin, „Samvinna bændanna“, hefði eingöngu verið send Framsóknarmönnum. Við útsendinguna var farið eftir síðustu skýrslum um framteljendur í landinu, og um hana annazt af samvizkusömum manni. Ég á því bágt með að trúa því, að ummæli hv. þm. Barð. hafi við rök að styðjast.