12.03.1931
Neðri deild: 22. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 500 í C-deild Alþingistíðinda. (923)
27. mál, kirkjur
Héðinn Valdimarsson:
Hv. frsm. meiri hl. kannaðist við þá yfirsjón sína, að hafa sett nafn mitt í óleyfi undir álit meiri hl. Mig furðaði satt að segja á því, að honum skuli ekki þykja meira fyrir því, en svar hans virtist bera vott um, að hafa sett nafn annars manns í óleyfi undir skjal. Hefir oft verið höfðað sakamál af minni ástæðum. Hann vildi ekki kannast við, að hið sama hefði hent hann um nafn hv. 3. þm. Reykv., en ég hygg, að sá hv. þm. sýni með atkvæði sínu, að hann fylgi ekki meiri hl. að málum. Ég skal ekki fara fleiri orðum um þetta atferli hv. frsm. meiri hl., en ég vona að það endurtaki sig ekki.
Það hefir verið synt fram á það áður, að það er á móti heilbrigðri skynsemi að segja, að kirkjur megi ekki rúma nema „allt að 1/3“ sóknarmanna. Og því ætti ekki söfnuði að vera leyfilegt að byggja stærri kirkju, ef hann vill, eins og t. d. kaþólski söfnuðurinn hér hefir gert?
Hv. frsm. meiri hl. sagði, að í æsku sinni hefðu kirkju- og réttarferðir verið aðalskemmtanir fólksins. Hv. frsm. virðist ætla að vera sjálfum sér samkvæmur, því að með ákvæðinu um að kirkjur megi ekki rúma nema „allt að 1/3 sóknarmanna“, virðist hann vera að reyna að eyðileggja skemmtun fólksins af kirkjugöngum, eins og hann hefir eyðilagt skemmtun þess af Skeiðaréttum.
Ef þingið vill kannast við, að sérstök lög gildi um Rvík í þessum efnum, á að taka það fram í lögum þessum. Eins og nú er, er ríkið kirkjueigandi hér. Dómkirkjan í Reykjavík tekur 800 manns af 18000, sem í söfnuðinum eru. hún tekur því minna en kirkjurnar í hinu útlenda dæmi, sem hv. frsm. meiri hl. nefndi. Ef menn vilja sækja kirkju hér í Reykjavík, er augljóst, að dómkirkjan er of lítil, og ríkinu ber skylda til að reisa nýja kirkju. Ég segi þetta ekki vegna sjálfs mín. Ég fer aldrei í kirkju, nema til að vera við jarðarfarir og svo við þingsetningu, og við það tækifæri hefi ég fengið nóg af því að sitja undir ákúrum fyrir pólitíska afstöðu flokks míns, án þess að geta svarað fyrir mig. En hér í bænum er margt af fólki úr öllum flokkum, sem vill sækja kirkju, og það á að hafa sama rétt til þess og aðrir landsmenn.