12.03.1931
Neðri deild: 22. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 503 í C-deild Alþingistíðinda. (925)

27. mál, kirkjur

Magnús Jónsson:

Ég var eigi viðstaddur, þegar hv. frsm. hóf ræðu sína, og veit ég því ekki, hversu mikið hann hefir sallað á mig og aðra í fyrri hluta ræðu sinnar. En eitthvað hefir það verið, því að það hafa verið skrifaðir hér á blað fyrir mig punktar úr ræðu hans, sem snerta mig. Það hefir verið skrifað hér, að ég hafi átt að vera með hvefsni og geistlegheit. Ég veit nú bara ekki almennilega, hvað hann hefir átt við með þessum orðum og það í svona nánu sambandi hvað við annað. Það er eins og hann hafi ekki lagt sem bezta merkingu í orðið geistlegheit hér í þessu sambandi. En hinsvegar felli ég mig vel við það, að vera talinn geistlegur, þegar það er notað í venjulegri merkingu. Ef hv. frsm. hefir stefnt þessum orðum til mín, vegna þess að ég gat ekki fundið heilbrigða hugsun út úr brtt. n. við 2. gr. frv., þá get ég ekkert bætt úr því. Orðin allt að 1/3 verða aldrei skilin öðruvísi en sem hámarksákvæði, þar sem ekkert lágmark er til. Og þó að hv. 1 þm. Skagf. vilji hlaupa í skörðin hjá frsm. með skýringar sínar, þá skilst þetta ekki öðruvísi.

Annars er það alleinkennilegt að setja með lögum bann við því að reisa megi meira en svo og svo stóra kirkju, ef kirkjueigendur sjálfir vilja byggja stærri kirkju en leyfilegt er, ef einhverjir vildu reisa stórt og veglegt musteri, og kosta það sjálfir, þá er þeim bannað það með þessu ákvæði. Má nefna sem dæmi kaþólska söfnuðinn hér í Reykjavík, sem byggði stærri kirkju en yfir allan söfnuðinn.

Á blaðinu stendur skrifað, að hv. frsm. hafi sagt, að það væri jafnvitlaust að taka til hamark og lagmark. Ég skil ekki þá röksemdafærslu. Eftir því ætti að vera sama hvort kennara, sem ráðinn er fyrir víst kaup, setjum 3 þús. krónur, er gert að skyldu að kenna að minnsta kosti 3 tíma á dag eða þá allt að 3 tíma á dag. Í fjárlögum er oft kveðið þannig að orði, að veitt er til einhvers allt að, t. d. 10 þús. kr. þýðir það þá, að til þessa sé veitt ótakmörkuð fjárupphæð? Er það álit n.? Ég er alveg hissa á jafnskýrum mönnum og þeim nöfnunum í n., að þeir skyldu ekki geta gert sig skiljanlegri en þetta. (MG: Hvernig byrjar setningin?) Það er sama, hvernig hún byrjar, hún segir ekki meira en þetta, að kirkja má ekki rúma meira en 1/3 safnaðarins. Þó ekki væri byggð stærri kirkja en yfir 1/20 eða einn mann af 20 þúsundum, einn mann í söfnuðinum, þá væri ekkert hægt við því að segja. Eða hvar vill hv. 1 þm. Skagf. hafa takmörkin? (MG: Ég hefi aldrei séð kirkju byggða, er rúmar aðeins einn mann). Nei, einu sinni verður allt fyrst, og svo hefir hv. þm. ekki séð allar kirkjur veraldarinnar. Hv. 1. þm. Skagf. sagði, að það væri hart að bera fram frv. á þessum tímum, er skyldaði ríkið til þess að byggja kirkju hér í Reykjav. yfir 3 þús. manns, en er það ekki einmitt nefndin, sem er að skuldbinda aðra kirkjueigendur til þess að byggja kirkjur, er rúmi 1/3 safnaða, eftir því sem hún sjálf skýrir sínar till.? Og það verður ekki séð, að það sé neitt harðara að skylda ríkið til að byggja sína kirkju heldur en t. d. fátæka söfnuði og menn úti um land. Reykjavíkursöfnuðir hafa beðið um það ár eftir ár að mega reisa dómkirkju hér í Reykjavík og ekki farið fram á að ríkið legði fram nema 200 til 250 þús. kr. Mér finnst sannarlega rétt, að stjórnin með þessu frv. sýni hinu háa Alþingi, að því beri skylda til að sinna kröfum Reykvíkinga. Það er ekki nema hollt fyrir þingið að fá að sjá framan í samskonar skyldur og það leggur á aðra. Það sem ég heyrði af ræðu hv. frsm., var lítið annað en skraddaraþankar um útvarpið og þau áhrif, er það mundi hafa á kirkjusóknina. Það getur verið, að hv. 2. þm. Árn. verði sannspar um það, að útvarpið dragi úr kirkjusókn, en ef það verður, þá verð ég að segja, að útvarpið vinni á móti kirkjunni og hennar málstað, og ég tel að þeir sem óska þess, að útvarpið dragi svo úr kirkjusókn, að um munar, séu alls ekki velviljaðir kirkjunni. Það má ræða um kirkjumal á tvennan hátt, bæði með velvild þess manns, sem óskar og trúir því, að hún megi eflast og aukast, og það má einnig ræða um þau með köldum hug, óska þess að sem minnst og helzt ekkert þurfi fyrir hana að gera. Þá er alveg óþarfi fyrir þá menn að vera nokkuð að ræða um kirkjur og kirkjusókn, sem álíta þær úreltar og vilja að annað, sem þeir telja betra, svo sem útvarp, komi í staðinn. Það þýðir ekkert fyrir tvo menn að fara að tala saman um þetta mál, ef annar talar af ást til málsins en hinn af kala, því að þá fara allar umræður út um þúfur.

Ef fólk hættir að sækja kirkju vegna þess, að útvarpið flytur messugerðir, og lætur sér nægja að sitja heima og hlusta á það, kannske meðan það skráfar og skeggræðir um hitt og þetta, þá tel ég aðeins ógagn að því að útvarpa messugerðum. Ég hafði hugsað, að útvarpsguðsþjónustur fengi menn til viðbótar við það, sem áður var, og að menn eftir sem áður sæktu kirkjurnar sér til huggunar og andlegrar uppbyggingar.

Þeir sem líta á kirkjuferðir sem skemmtanir og miða þær við Skeiðaréttir eða svallstaði, byggja á allt öðrum grundvelli, og þá er réttast að beina umræðunum inn á aðrar brautir. Út frá þeim forsendum getum við alveg hætt að tala um kirkjubyggingar og farið að tala um að byggja bíó eða leikhús í staðinn.

Hv. frsm. sagðist ekki vilja, að stofnað yrði nýtt kirkjuvald, og það hefir n. viljað koma í veg fyrir með því að setja ráðherra í staðinn fyrir kirkjustjórn í frv. Hv. 1. þm. Skagf. sagði, að kirkjustjórn væri óákveðið hugtak, og þar sem ráðherra væri sett í staðinn fyrir það orð, þýddi það, að ráðherra skyldi hafa endanlegt úrskurðarvald. Ég álít, að með kirkjustjórn sé það sama meint, en með því að taka það orð út úr frv. og setja ráðherra í staðinn, sé verið að gefa ráðherra undir fótinn með það að ganga fram hjá biskupi, í því skjóli, að Alþingi hefði meint það með lögunum, og væri það ekki alveg ástæðulaust. Það verður auðgert að vitna til þess, að Alþingi tók á sínum tíma orðið kirkjustjórn út úr frv. og setti ráðherra í staðinn. Mér þykir vænt um yfirlýsingu hv. frsm. um það traust, sem hann ber til hv. 1. þm. Skagf. sem kirkjumálaráðherra. Aftur á móti finnst mér, að núverandi kirkjumálaráðherra hafi verið dálítið mislagðar hendur í kirkjustjórninni, t. d. að taka að hann frestaði óeðlilega lengi að auglýsa laus prestaköll.

Hv. frsm. minntist á Strandakirkju og talaði um, að hún mundi vera sú eina kirkja, sem af sjálfsdáðum gæti byggt sig upp. Ég held nú, að hann hefði ekki átt að fara að ræða um Strandakirkju, því að eins og menn vita, stuðlaði einmitt hann ásamt fleiri góðum þingmönnum að því, að þessi kirkja var svipt fé sínu, sem svo var varið til annars en kirkjubyggingar, og nú er óvíst, að hún eigi fé til að byggja sig upp. Annars þýðir ekki að ræða um þetta meira, því að það verður bara karp.

Brtt. við 2. gr. frv. sýnist aðallega vera gerð vegna Reykvíkinga, en ef þeir hafa nú þörf og löngun til þess að fá stærri kirkju, þá virðist fremur leiðinlegt fyrir ríkið að ganga á undan í því efni að byggja of litla kirkju yfir þann sofnuð, sem það á að byggja kirkju fyrir. Það er satt, að það þarf mikla peninga til þess að byggja veglegar kirkjur, en því þá að vera að skylda fátæka söfnuði til þess? Það hefir verið bent á það, að kirkja hér í Reykjavík mundi kosta 7800 þús. kr., en þá sýnist það vera kostaboð, sem Reykvíkingar hafa boðið ríkinu, að bjóðast til að byggja hana með 200 þús. kr. álagi frá ríkinu.