12.03.1931
Neðri deild: 22. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 515 í C-deild Alþingistíðinda. (935)

27. mál, kirkjur

Pétur Ottesen:

Aðeins örfá orð. Ég ætla að geyma mér að svara hv. frsm. par til við 3. umr., og mun ég þá koma fram með brtt. við frv.

Þá er að víkja dálítið að 2. gr. frv. Hv. 1. þm. Skagf. gerði tilraun til þess að skýra, hvað fælizt í orðunum „allt að“ í 2. brtt. Mér skilst, að þetta orðalag sé svo teygjanlegt og óákveðið, að nálega sé að engu hafandi. Þeim, sem þykir of langt gengið í frv., er engan veginn fullnægt með þessari brtt. Reykjavík gæti, þrátt fyrir það, þótt brtt. yrði samþ., krafizt af ríkinu, að það reisti kirkju, er rúmaði 1/6 af sóknarmönnum. Ég tel það mjög varhugavert fyrir ríkið að samþ. slíkar kvaðir á sig sjálft. (MG: Brtt. hefir verið tekin aftur). Já, það er út af fyrir sig gott, en ég vil aðeins benda hv. þdm. á það, að í 2. gr. frv. felst annað og meira en það, sem brtt. n. fjalla um. Ég held, að það væri ekki síður ástæða til að athuga síðari lið 2. gr. frv. Þar segir svo: „Þegar ný kirkja er reist, skal miða stærð hennar við væntanlega fólksfjölgun innan sóknar“. Ég býst nú við, að þegar ríkið fer að skila kirkjunum í hendur söfnuðunum, yrði tillag ríkissjóðs miðað við byggingu nýrrar kirkju til viðbótar þeirri, sem fyrir er, og myndi Reykjavíkursókn ekki láta sér nægja að heimta kirkju, er tæki allt að 1/6 sóknarmanna, miðað við stærð safnaðarins nú, heldur yrði þá tekið tillit til þeirrar aukningar, sem yrði á söfnuðinum í framtíðinni. Þætti mér þá ekki ólíklegt, að eitthvað gæti bæzt við þessa milljón, eða hvað það nú er, sem áætlað er, að ný kirkja fyrir Reykjavík mundi kosta.

Ég vænti þess, að hv. n., taki þennan lið 2. gr. frv. einnig til athugunar, úr því að n. hefir gengið inn á að athuga betur fyrri lið 2. gr.