12.03.1931
Neðri deild: 22. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 517 í C-deild Alþingistíðinda. (937)
27. mál, kirkjur
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Það er aðeins örstutt aths., í tilefni af ræðu hv. 1. þm. Skagf. Hann hafði orð um það, að aðstaða stjórnarinnar til þessa frv. væri einkennileg, þar sem ég hefði t. d. viljað fella burt 2. gr. frv. Ég held, að hv. þm. ætti sízt að tala á þennan veg. Mig minnir, að það væri á þinginu 1927, að hann sjálfur sem ráðh. flutti eða lét flytja frv. hér í deildinni, sem ekki hafði meira fylgi meðstjórnenda hans en svo, að þáverandi stjórnarformaður, hv. 1. landsk., stóð upp og andmælti frv., ekki aðeins tveim greinum þess, heldur því öllu undantekningarlaust. (MG: Hvaða frv. var það?) Það var frv. um mælingar lóða í kaupstöðum og kauptúnum.