18.03.1931
Neðri deild: 27. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 528 í C-deild Alþingistíðinda. (946)

27. mál, kirkjur

Frsm. (Magnús Torfason):

Ég býst ekki við að þurfa að haga orðum mínum svo, að miklar deilur hljótist af. Nefndin hefir athugað þessar till. og getur verið meðmælt heim í mörgu. Af þessum till. er það sérstaklega ein, sem þýðingu hefir, brtt. 156,1. En ef vel er að gáð, þá felst það sama í þeirri brtt. í báðum liðum og í 2. gr. frv. með brtt. n. Ég er óviss um, að sú brtt. hefði komið fram, ef brtt. n. hefði þá legið fyrir. Munur er sáralítill á brtt.

Flm. brtt. 156 segja, að söfnuðurinn ákveði að reisa kirkju, og geti þá prófasturinn ekkert gert án samþykkis safnaðarins, þannig að ef söfnuðurinn vill ekki byggja, þá geti prófastur ekki að gert, en það, sem liggur í okkar brtt. er, að prófastur hafi rétt til að hlutast til um byggingar kirkna og geti staðið í samningum við söfnuðina um það. Það er fullt eins kirkjulegur svipur á brtt. n. og á hinni till. En mér virðist sem það sé hitamunur en ekki fjár á till.

Þá er 4. brtt. Það er sagt svo í grg.: „Bannað er að halda fund um almenn ágreiningsmál í kirkju“. Þá vilja till.menn bæta við: „önnur en þau, er varða málefni kirkjunnar eða safnaðarins“. Við lítum svo á í allshn., að almenn ágreiningsmál og safnaðarmál geti farið saman; okkur hefir aldrei dottið í hug, að ekki mætti halda fund um ágreiningsmál kirkjunnar. Þess vegna finnst mér óþarft og heldur óviðkunnanlegt, að þetta skuli vera orðað þannig: „Bannað er“ o. s. frv. Hvort þessi till. er samþ. eða ekki finnst mér á sama standa og þó frekar skemma.

Að því er snertir 6. till. á þskj. 156, þá fellst n. á að mæla með henni, þótt vel geti orðið ágreiningur um það, hve mikinn meiri hl. þyrfti til að samþ. flutning kirkju. Ég gæti hugsað mér 2/3 hluta atkvæða. Af því vænti ég, að hver nefndarmaður sjái, að við höfum tekið þessum till. mjög vel.

Þá er brtt. á þskj. 153, 5. brtt. hún finnst okkur svo sanngjörn, að ómögulegt sé annað en samþ. hana. Mér finnst minni svipur á frv., ef þetta nær ekki fram að ganga.

Í sambandi við þessa till. gat hv. 1. þm. Reykv. þess, að ríkið væri aumasti kirkjueigandi hér á landi. Ég vil ekki kannast við, að þetta sé rétt, eftir efnum og ástæðum, og vil benda á, að Reykjavík hefir eignast land, sem kirkju fylgdi, og ef réttilega hefði verið farið með það, þá væri það milljónavirði nú. Ég vil líka benda á, að það eru til verri kirkjueigendur. — Ég kom í kirkju fyrir fáeinum árum, og hvað haldið þið að ég hafi séð þar? Þar var hross fyrir altari, og poki í stólnum! Það hafði ekki verið messað þar í mörg ár. Þetta var því áreiðanlega verri kirkjueigandi en ríkið.

Um sektir, sem eiga að renna til kirkju, eru almenn ákvæði, 50–500 kr., og því er óþarfi að ákveða hér annað hlutfall. Þá er óvíst, hvort kirkjan kemst á, og býst ég ekki við, að vert sé að gera leik að því að víkja frá þeirri almennu reglu, að sektir renni í ríkissjóð, ef ekki er annað ákveðið.

Þá kemur brtt. á þskj. 164 frá hv. 2. þm. Skagf. Hann vill, að bændakirkjueigendum sé falið að innheimta kirkjugjöld. N. áleit, að þetta gæti verið varhugavert, því að vafalaust vildu þeir, sem ekki gera vel við kirkjur sínar, helzt vera lausir við að innheimta kirkjugjöld, en ef þeir gætu falið sóknarnefnd að gera það, þá væri allt öðru máli að gegna. N. fellst á síðari brtt. á þessu þskj.

Þá er brtt. á þskj. 171 frá hv. 1. þm. S.-M. Hann upplýsir, að bænhús séu til hér á landi; n. hefði getað hugsað sér það líka, en treysti því, að kirkjumálan. hefði vitað þetta. Ég sé ekki ástæðu til að ganga á móti brtt., því að nefndarmenn hafa óbundið atkvæði um þetta, en vil geta þess, að ég hefi fengið upplýsingar frá hv. þm. um það, að eitt bænhús hafi verið notað sem eldiviðargeymsla í 50 ár, svo að sjá má, að ekki er farið vel með öll bænhús. (SvÓ: Hver var sá heiðursmaður, er gaf þessar upplýsingar?). Ég hefi ekki leyfi til að nafngreina hann.

Þá kemur að þeirri brtt. hans, að leggja kirkjunefndir niður, og er ég alveg hlessa á, að jafn vel hugsandi maður og trúrækinn og hann er, skuli hafa fundið ástæðu til að vera á móti þessu. Ég hélt, að því fleiri sem störfuðu að málum kirkjunnar, því betur væri henni farið; en það er sérstakt við þessa nefnd, að það er ætlazt til, að kvenfólk verði í henni. En við vitum, að kvenfólkið hefir ekki neitt sem heitir viljað taka þátt í opinberum málum af óframfærni sinni og öðrum ástæðum. En þarna er ætlazt til að þær starfi sér. (SvÓ: Það vantar ákvæði í frv. til þess). Hugsunin er samt sú. Ég tek undir það með hv. 1. þm. Reykv., að konur hafi reynzt kirkjum sínum vel og gert ýmislegt til að prýða þær. Hv. þm. sagði, að þessar breytingar væru sendar sóknarnefnd til höfuðs, en kirkjunefnd og sóknarnefnd ættu að starfa saman. En ég veit yfirleitt ekki til, að þegar kvenfólk hefir unnið með karlmönnum, þá hafi þær orðið til að spilla vinnubrögðunum. Þvert á móti hafa komið bætur um fundarsiði, betra orðbragð og hegðan alla. Sérstaklega held ég, að ekki sé ástæða til að amast við, að kvenfólk skipti sér af kirkjumálum. — Páll postuli, sem enginn var þó kvennavinur, segir viða í bréfum sínum, að kvenfólkið hafi verið stoð og stytta safnaðarins, og endar flest sin bréf á kveðjum til ýmissa kvenna. Ég helt að ekki væri ástæða fyrir hv. þm. að vera á móti því, að systurnar störfuðu í söfnuðinum.

Að því er snertir 8. brtt. hans á þskj. 171, þá á hún ekki hér við, og sýnir það líka, að hann hefir ekki fullkomlega skilið takmark þessa frv.; en brtt. er svo: „Sóknarnefnd aðstoðar prestinn um allt, er lýtur að góðri skipun safnaðarmála, eflingu trúarlegs áhuga, viðhaldi fagurra helgisiða og skreyting kirkju“.

Þetta á ekki við í frv. Þetta frv. á aðeins við kirkjur og ekkert annað. Ég virði hv. þm. sérlega mikið fyrir það góða og fagra hugarfar, er kemur fram í þessum till. hans, en þær eiga ekki við þessa löggjöf. Þetta kom líka fram, er hann talaði um andleg störf eða andaverk, ég veit ekki hvað ég á að kalla það í þessu sambandi, það fer langt út fyrir þetta frv.

Ef frv. yrði samþ. með þeim brtt., er n. mælir með, þá gæti það orðið sæmilega úr garði gert héðan úr deildinni. Svo endurtek ég, að það er bitamunur en ekki fjár, hvort brtt. n. við 2. gr. er samþ. eða brtt. á þskj. 156.