18.03.1931
Neðri deild: 27. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 537 í C-deild Alþingistíðinda. (953)

27. mál, kirkjur

Jón Sigurðsson:

Það var hv. þm. V.-Húnv., sem spurðist fyrir um hjá flm., hvernig þeir skildu 6. lið á þskj. 156, sem hljóðar þannig: „Kirkju má því aðeins flytja úr stað, að 34 hlutar atkvæðisbærra safnaðarmanna hafi samþ. færsluna“. Hann vildi ekki skilja það á þá leið, að því aðeins kæmi til greina slík atkvgr., að flutt væri út úr landareign, og tók par sem dæmi, ef flutt væri kirkjan frá. Kirkjuhvammi ofan á Hvammstanga.

Ég er ekki flm. þessarar till., en ég er raðinn í því að greiða henni atkvæði, og skal ég lýsa því, með hvaða skilningi ég geri það. Ég tel, að hér sé ekki um það að ræða, þótt kirkjan sé færð til á grunni, t. d. flutt úr kirkjugarði út fyrir hann, til þess að fá betri kirkjugrunn. En hitt álít ég ekki hægt, að flytja kirkju langa leið, án þess að komi til atkvgr. safnaðarmanna.

Mér er kunnugt um, að þótt ekki sé um langan flutning að ræða, þá getur mönnum verið það kappsmál og hitamál. Það byggist ekki á mismuninum á því, hve langt sé að sækja kirkju, heldur stafar það af þeim grafreitum, sem fylgja hinum gamla kirkjustað, og þeim kvíða, sem margir bera fyrir því, að leiði nánustu vina sinna og vandamanna verði lögð í auðn, og minnismerki smámsaman eyðilögð. Þetta er ýmsum viðkvæmt mál, og það er nátengt kirkjunni. svo að af þeim ástæðum hafa margir sett sig ákveðið á móti flutningi, þar sem þetta hefði getað komið til greina.

Ég vildi láta sjá, ef síðar yrði flett upp í Alþt., að komið hefðu fram raddir í aðra átt um skilning á þessari grein.