18.03.1931
Neðri deild: 27. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 541 í C-deild Alþingistíðinda. (956)
27. mál, kirkjur
Magnús Guðmundsson [óyfirl.]:
Ég er ekki vanur að vera langorður, og enda þótt ég hafi ekki tekið til máls áður við þessa umr., þá get ég einnig sparað mér langt mál að sinni.
Það stendur ekki eins á um þetta frv. og frv. það, sem hæstv. forsrh. var að tala um. Þetta frv. á að hafa verið samþ. á ráðherrafundi og borið undir konung, en hitt frv. var ekki stjfrv., heldur flutt eftir minni beiðni. En það er eftir atvikum gott að fá þá skýringu hjá hæstv. forsrh., að öll stj. beri ábyrgð á þeim frv., sem flutt eru eftir tilmælum eins manns úr stj. Eftir því ber hann ábyrgð á þeim frv., sem hæstv. dómsmrh. flytur eða lætur flytja fyrir sig.
Hæstv. ráðh. þótti það ekkert undarlegt, þótt hann væri mótfallinn þessu frv. í einstökum minni hattar greinum. En mér þykir það nú samt sem áður undarlegt af hæstv. stj., að bera fram frv. án þess að láta svo lítið að geta þess við 1. umr., að hún sé mótfallin langstærsta atriðinu í frv., nefnilega milljónaatriðinu. það er alveg rétt, að við í allshn. höfum lagt rækt við málið, en við höfum litið svo á, að þetta væru till. stj., en ekki kirkjumálanefndar eingöngu. Ég sagði það, að þetta frv. væri munaðarleysingi í deildinni og það er alveg satt, en þar með er ekki sagt, að frv. geti ekki átt einhvern að, en svo mikið er víst, að það á hvorki föður né móður. Ég held, að hæstv. dómsmrh. hafi lagt litla rækt við þetta frv., því að hann hefir ekki einu sinni nennt að strika út úr frv. þær gr., sem hann er ósamþykkur. Hann hefir undir umr. ekki gert annað en mæla á móti einum tveim brtt., en ekki látið svo lítið að nefna hinar brtt., sem fram hafa komið. Þetta sýnir litla ræktarsemi og lítinn áhuga fyrir frv. Hitt var ekki rétt hjá hæstv. forsrh., að ég hefði kallað þetta frv. útburðarbarn, ég sagði munaðarleysingi, og þótt hv. allshn. hafi nú tekið það upp á arma sína, þá er til of mikils ætlazt, að við förum að ganga því í föður- og móður stað. Við höfum tekið það til uppfósturs, og þykjumst við því hafa gert fulla skyldu okkar, og meira verði ekki af okkur krafizt.