18.03.1931
Neðri deild: 27. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 547 í C-deild Alþingistíðinda. (960)
27. mál, kirkjur
Pétur Ottesen:
Það er auðséð, að hv. 2. þm. Árn. er að bera upp þessa kveinstafi sína út af því, að ég hefi einhvern tíma áður verið dálítið harðleikinn við hann. (MT: Ég held hann eigi ekkert hjá mér). Þessa játningu gaf hann samt rétt áðan. Ég minnist þess að á síðasta þingi hafði hann eitt sinn, er okkur bar eitthvað í milli, í heitingum við mig um það, að taka mig til bænar, og let ég víst orð falla um það, að ég væri þess albúinn að taka við því bænahaldi, þann veg sem hæfði. Bænahaldið leið hjá að því sinni. En máske er þetta klaufaspark hans í kvöld uppfylling þessa fyrirheits frá í fyrra.
En fyrst hæstv. forseti leyfir mér þessa athugasemd, þá vil ég að endingu minna hann á það heilræði, sem ég gaf honum í fyrra, að vara sig á að láta óvirðuleg ummæli, sem hann hafði þá um gamlar konur, berast austur yfir fjall; þau gætu komið honum illa, og væri í fyllsta ósamræmi við það, þegar hann er að kyssa á klæðafald kerlinganna á Eyrarbakka og biðja þær að kjósa sig. Og þó því fremur er ástæða til að minna hann á þetta nú, þar sem dylgjur hans um postulann Pál benda mjög freklega í áttina til þess, að hann sé ef til vill ennþá nærgöngulli við kerlingarnar á Bakkanum en að hann láti sér nægja að kyssa á klæðafaldinn á þeim.