18.02.1931
Efri deild: 3. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 552 í C-deild Alþingistíðinda. (967)

12. mál, stjórnarskipunarlög

Jón Baldvinsson:

Þegar ég fór að lesa þetta frv., urðu mér það hin mestu vonbrigði, hversu skammt það gekk. Sum atriði frv. ganga að vísu í rétta átt, en fyrst á annað borð er farið að hreyfa við stjskr., þá nægir ekki að taka nokkur atriði út úr, sem breytinga þurfa við, heldur verður að taka öll þau atriði, sem almenn krafa er um, að betur færu á annan veg. En þetta frv., sem hér liggur fyrir, er kák eitt. Það hefir að geyma tvær breyt., sem að vísu eru báðar stórar breytingar, nefnilega afnam landskjörsins, sem vel getur verið að réttmætt sé, og svo hin breytingin, sem er stórmerk, en það er að rýmka kosningarréttarskilyrðin. Hér hefði átt að fylgja með að afnema skipting Alþingis í tvær deildir. Þessi tvískipting Alþingis er ekkert annað en svikamylla, sem ráðugir stjórnmálamenn hafa fundið upp til þess að flækja mál milli deilda og tefja afgreiðslu þeirra. Það er alkunnugt, að mörg ágæt mál stranda í deildunum einungis á því, að haft er í hótunum að fella þau í hinni deildinni, þegar þau koma þangað. Tvískipting þingsins gerir þannig öll störf þingsins ógreiðari og þinghaldið í heild miklu lengra og dýrara, auk þess sem það gerir niðurstöður þingmála oft aðrar en meirihlutavilji þingsins stendur til. Ef þessi breyt. yrði tekin upp og Alþingi gert að einni málstofu, væri sjálfsagt viðeigandi að breyta þingsköpum eitthvað, til þess að tryggja betri athugun á málum, en um það býst ég við, að yrði fullt samkomulag, er til kæmi.

Það aðalatriði frv., að færa aldurstakmark við kosningar til Alþingis niður í 21 ár, er alveg sjálfsögð breyt., en undarlegt er það, að núv. stj., sem áður hefir lagt fyrir þingið frv. um rýmkun kosningarréttar í málefnum sveita og kaupstaða, skuli ekki þora að ganga jafnlangt í þessu frv. sem í frv. um kosningar í malefnum sveita og kaupstaða. Það hefir mörgum litizt svo á við lauslegan yfirlestur þessa frv., að í því felist sama réttarbótin um kosningarrétt til Alþingis og felst í lögum nr. 23 frá 1929 um kosningar í málefnum sveita og bæja. En það er langur vegur frá, að svo sé. Úr þessu frv. er sleppt einu stóru atriði, nefnilega að veita þeim, sem þegið hafa opinberan styrk, einnig kosningarrétt og kjörgengi til Alþingis. Hæstv. stj. taldi ekkert varhugavert að veita þessum mönnum kosningarrétt og kjörgengi í málefnum sveita og kaupstaða, en nú er hún svo íhaldssöm allt í einu að þora ekki að taka samskonar ákvæði upp um alþingiskosningar. Þetta eru rangindi og hringlandaháttur af hálfu stj. Það eru nógu margir smánarblettir á stjskr. okkar, þótt þessi væri þveginn burtu. Þetta ákvæði stjskr. á að afnema tafarlaust, og það því fremur, sem sjálft þingið leyfir að hafa undanbrögð um þetta atriði og gefur hreppsnefndum vald til að fara í kringum nefnd ákvæði stjskr. og þannig brjóta anda hennar. En þrátt fyrir þetta þorir hæstv. stj. ekki að koma fram með till. um þetta. Það má jafnvel búast við því, að meðan nefnt ákvæði stendur óhaggað í stjskr., þá geti einhverjir farið að draga í efa, hvort réttindaákvæði ýmissa laga séu í gildi, t. d. berklavarnalaganna, sem mæla svo fyrir, að enginn skuli missa neins í af opinberum réttindum við að þiggja styrk skv. berklavarnalogunum.

Það eru enn ótalin mörg atriði í stjskr., sem þurfa breyt. við, og gefst síðar tækifæri til að ræða það til nokkurrar hlítar, þegar málið kemur í nefnd og til frekari meðferðar í deildinni.

Það er í rauninni ofur skiljanlegt, að hæstv. stj. skyldi einmitt taka rýmkun kosningarréttaraldursins upp í frv. Það hafa komið fram svo háværar kröfur um það í seinni tíð, að hún hefir ekki þorað að standa á móti þeim, einkum eftir að félag ungra framsóknarmanna sendi á öndverðu þingi áskorun um að breyta þessu. Félög jafnaðarmanna hafa stöðugt haldið þessu fram, og síðan íhaldið fór að skipta sér af samtökum ungra manna í landinu, hafa þeir víst líka látið í ljós samskonar óskir. Það getur því ekki talizt nein sérstök dyggð eða siðferðislegt afrek hjá hæstv. stj., þótt hún hafi tekið þetta ákvæði upp í frv., en hitt er alveg fráleitt, að hún skuli ekki um leið hafa lagt til að breyta síðari málsgr. 29. gr. stjskr. í samræmi við þá breyt., sem gerð var 1929 á kosningalögum sveita og bæja.