07.04.1931
Efri deild: 40. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 554 í C-deild Alþingistíðinda. (970)

12. mál, stjórnarskipunarlög

Jón Baldvinsson:

Ég vildi mælast til þess, að hæstv. forseti taki fyrst fyrir 5. málið á dagskrá, stjórnarskrárbreytinguna. Það mál var á dagskrá miðvikudaginn fyrir skírdag, en var þá ekki tekið fyrir. Og úr því að það er nú síðasta málið á dagskrá í dag, þá er viðbúið, að það komist ekki að heldur. Og jafnvel þótt það yrði tekið fyrir, þá yrði það svo seint, að ekki mundi málið verða útrætt í dag.

Ég vil snúa þessari beiðni minni til hæstv. forseta, að hann beri þessa málaleitan mína upp nú þegar og láti hv. dm. greiða atkv. um þetta.