07.04.1931
Efri deild: 40. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 570 í C-deild Alþingistíðinda. (979)
12. mál, stjórnarskipunarlög
Jón Þorláksson:
Það er sjálfsagt og rétt að svara fyrirspurn hæstv. forsrh. Ég ætla að bíða til 3. umr. og sjá, hvort honum tekst betur að orða hugsun sína þá heldur en í þessari tillögu á þskj. 322. Ég get ómögulega lofað fylgi við tillögu, sem hann ætlar að bera fram síðar meir, fyrr en það sést, hvernig honum tekst að smíða hana. Og ég tel mig því síður hafa ástæðu til þess, þegar hann hefir sjálfur játað, hversu mistekizt hefir smiðið á þessari till.