07.04.1931
Efri deild: 40. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 570 í C-deild Alþingistíðinda. (980)
12. mál, stjórnarskipunarlög
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Ég get vitanlega ekki krafið hv. 1. landsk. svars. Og ég þyrfti ekki að fá svar hans, þó að ég vildi, að þeir, sem hér eru inni, fengju það. Ég veit, að hv. 1. landsk. mun aldrei rétta upp höndina móti því, að útlend auðfélög fái að búa um sig á þessu landi. Hans fortíð er þannig, að hann mun aldrei gera það.