23.03.1931
Efri deild: 31. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 577 í C-deild Alþingistíðinda. (992)
17. mál, brúargerðir
Jón Þorláksson:
Mér þótti vænt um að heyra undirtektir hæstv. ráðh hvað snerti bruna á Hvítá, en ég er ekki viss um, að saman fari óskir þeirra, sem sækja á afréttir úr Árnessýslu, og ferðamanna um brúarstæðið. Þyrfti þó að sjálfsögðu að athuga, hvort ekki mætti sameina óskir þessara tveggja aðilja.
Í aths. við frv. á bls. 11 er Andakílsá hjá Grund talin meðal þeirra vatnsfalla, sem enn skuli vera óbrúaðar samkvæmt brúalögum. Má þó sjá annarsstaðar í frv., að ætlazt er til, að veginum yfir Ferstikluháls, um Svínadal og niður í Skorradal, sé haldið bílfærum. Hitt getur líka verið, að byggja skuli brú yfir ána hjá Ausu, en hún kemur ekki að neinu gagni fyrir þann veg, er ég nefndi, en ef brú verður byggð hjá Grund, þá er þessi vegur kominn í samband við vegakerfi Borgarfjarðar. Og þó að þarna yrði máske ekki langt á milli tveggja brúa, þá álít ég sjálfsagt, að byggja brú hjá Grund, því að með því væri létt af mikilli samgönguteppu. Veit ég dæmi þess, að menn hafa lent í miklum erfiðleikum, er þeir hafa reynt að komast yfir ana á bilum, þótt hún væri með minnsta móti. Þarna er líka ágætt brúarstæði,, og mundi vera mjög ódýrt að byggja þar brú.
Ég vil svo að lokum óska þess, að það verði athugað vel, hvort ekki sé rétt að taka þessa brú með í brúarlögin.