04.08.1931
Neðri deild: 20. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 962 í B-deild Alþingistíðinda. (1021)

104. mál, notkun bifreiða

Einar Arnórsson.:

Brtt. sú á þskj. 182, er ég flyt við þetta frv., gengur út á það að gera það skýrt og ótvírætt, að nægilegt sé að tryggja einn ökumann fyrir hverja bifreið, hvort sem hann heitir Pétur eða Páll. Ég geri ráð fyrir, að þetta hafi einnig verið tilætlun hv. flm., en það er ekki nægilega skýrt tekið fram í frv.