15.08.1931
Efri deild: 30. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 964 í B-deild Alþingistíðinda. (1034)

104. mál, notkun bifreiða

Jón Þorláksson:

Við 2. umr. þessa máls greiddi ég atkv. á móti 1. gr. frv. án þess að gera grein fyrir ástæðunni til þess. Við nánari athugun hefi ég ekki talið rétt að láta þá breyt. á bifreiðalögunum, sem felst í l. gr., ná fram að ganga án þess að ég segði a. m. k. nokkur aðvörunarorð út af því.

Þessi gr. fer, eins og kunnugt er, fram á það, að heimila breikkun á bifreiðum frá 1,75 m., sem hefir hingað til verið hin lögákveðna breidd, og upp í 1,86 m., eða um 11 cm. Ég hefi sjálfur fengizt ofurlítið við að aka bifreið hin síðari ár, og mér hefir orðið það ljósara á því tímabili, hvílíkum erfiðleikum það veldur bifreiðaumferðinni hér á landi, að vegirnir skuli vera svo mjóir. Ég hefi að vísu ekki athugað yfirleitt breidd þeirra bifreiða, sem hér eru á ferð, en ég tel vist, að fyrirmælum laganna hafi verið fylgt í því efni, þannig að þær séu ekki breiðari en þar er heimilað, 1,75 m., og sumar mjórri. En þannig er ástatt á mörgum vegum, að mjög miklir erfiðleikar eru á því fyrir tvær bifreiðar af þessari breidd að mætast. Og ef rannsókn væri um það gerð, þá myndi það koma í ljós, að töluverður hluti af minniháttar bifreiðaslysum stafa af árekstri þegar bifreiðar mætast. Og þau bifreiðaslys, sem mesta eftirtekt hafa vakið, hafa flest orsakazt af því, að báðir hafa verið að forðast að fara út af veginum, og stundum líka af því, að annarhvor tæpir svo á fremsta hlunn með að fara út á vegarbrúnina, að hún springur. Þetta hefir komið fyrir þar sem vegirnir eru hátt upp hlaðnir, og orðið til þess, að sú bifreiðin, sem hefir verið undan brekkunni, hefir oltið út af veginum og hlotizt af meira eða minna slys. Þegar þetta stendur svo tæpt nú, þá er varhugavert að leyfa breiðari bifreiðum umferð um vegina. Það má vera, að erfitt sé að halda bifreiðunum svona mjóum, þegar um er að ræða sérstaklega stórar vöruflutningabifreiðar, fyrir 4–8 smál. flutningsmagn, og svo e. t. v. stærstu fólksflutningsbifreiðar eins og t. d. almenningsvagnarnir, sem eiga að taka mjög marga farþega. En nú er það svo um okkar vegi og brýr, að hvorugt er þannig byggt, að það þoli umferð þessara stóru bifreiða, sem eiga að taka mikinn þunga. Því eins og ástatt er um vegakerfið yfirleitt, þá sé ég enga ástæðu til þess að leyfa þessa breikkun á bifreiðunum, sem hér er farið fram á. Auðvitað getur það komið fyrir í einstaka tilfelli, að æskilegt væri að mega hafa bifreiðarnar stærri en núgildandi l. heimila. t. d. munu eiga að koma hér í Rvík stórar almenningsbifreiðar til umferða um götur bæjarins og vegi þá, sem liggja frá aðalbænum og til úthverfanna, sem myndazt hafa í kringum bæinn. Vel má vera, að ástæða væri til að leyfa ofurlítið breiðari bifreiðar í jafnsérstökum tilfellum, en til þess þyrfti alls ekki að gera neina allsherjar breyt. á l. eða leyfa bifreiðum af þeirri stærð að vera á ferð eftir öllum vegum, jafnvel sýslu- eða hreppavegum, sem víða eru nú orðnir akfærir, en eru ennþá mjórri en þjóðvegir, sem þó eru í mjósta lagi.

Ég vildi aðeins tala þessum aðvörunarorðum í þessari hv. d. áður en þessi ákvæði frv. kæmu til atkv. og áður en málið yrði að fullu afgr. leitt, að þessi aðvörunarorð hv. 1. landsk. skyldu ekki koma fyrr fram en raun er á orðin, og sérstaklega það, að brtt. kom svo seint, að n. hefir ekki unnizt tími til þess að ráðgast um hana. Ég get skýrt frá því, að vegamálastjóri hefir sent n. erindi um þetta mál, en hann getur alls ekki um þetta atriði í sínu áliti. Það, sem hann varar við, eins og vikið er að í nál., er það, að ökuhraðinn verði of mikill. Ennfremur kallaði n. til viðtals við sig einn af aðaleftirlitsmönnum bifreiða hér í Rvík, hinn mætasta mann. Áttum við allýtarlegt samtal við hann um frv., og breyt. voru gerðar á því samkv. till. hans. en hann hafði ekkert við þessa breyt. að athuga, og þess vegna hafði ég gengið út frá því, að þar sem þeim mönnum, sem öllum fremur ættu að hafa vit á slíkum málum, hafði ekki fundizt neitt athugavert við þetta, þá væri öllu óhætt. Nú hefir þessi till. komið of seint til þess að unnt væri að athuga hana, og vil ég því leyfa mér að fara fram á það við hæstv. forseta, að hann taki málið út af dagskrá og umr. verði frestað.