01.08.1931
Neðri deild: 18. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 8 í D-deild Alþingistíðinda. (1035)
91. mál, útvarp talskeyta
Flm. (Jón Auðunn Jónsson):
Ég vil byrja á því að biðja hv. þdm. að athuga, að misprentun eða misritun hefir orðið á þskj. 91, þar sem er útvarp símskeyta, í stað útvarp talskeyta. Þetta er leiðrétt með brtt. á þskj. 139.
Það er nú orðin hin mesta nauðsyn að útvarpa talskeytum. Margir hinna stærri báta hafa viðtæki og gætu því fengið fréttir, ef útvarpað væri talskeytum, sem þeir geta ekki fengið ella. Sömuleiðis eru það margar sveitir landsins, sem eiga erfitt um að ná á símstöð, eða eru jafnvel símalausar. Fjöldi manna í þessum sveitum hefir keypt útvarpstæki nálega eingöngu til þess að geta tekið á móti talskeytum.
Það væri töluverður ávinningur, ef hægt væri að útvarpa talskeytum frá loftskeytastöðinni í Reykjavík, en hún hefir svo ófullkomin útvarpstæki á lágbylgju, að hún dregur ekki til skipa, sem eru fyrir vestan land, og þá heldur ekki til fjarlægari landshluta. Hv. þm. Ísaf. flytur þá brtt. á þskj. 146, að talskeytum skuli útvarpað frá útvarpsstöðinni, en ég hefi heyrt, að það væri dýrt, og verkfræðingur útvarpsins, sem fékk þessa öldulengd viðurkennda, segir, að það muni fara í bág við samninga, að útvarpað sé almennum talskeytum, og það gæti valdið deilum, ef stöðin væri notuð til þess að útvarpa almennum skeytum. Hinsvegar telur verkfræðingurinn nauðsynlegt, að útvarpað sé af stuttbylgjulengd, til þess að skip geti náð skeytunum, og það valdi ekki truflunum á annari notkun loftskeytastöðvarinnar. Hann telur, að með ekki miklum kostnaði megi koma slíkri stöð fyrir í sambandi við loftskeytastöðina. Kostnaðinn áætlar hann 800 kr., ef útvarpstæki loftskeytastöðvarinnar eru endurbætt, en ef sett er upp sérstök stuttbylgjustöð, nokkur þús. kr. Ég get hugsað mér, að það láti nærri, að kostnaðurinn verði ekki meiri en þetta, því mér er kunnugt um, að maður fyrir vestan smíðaði talstöð, sem náði frá Vesturlandi og austur á Kópasker, og kostaði hún 500 kr. Útvarpsstöð þessi þyrfti að vera nokkru sterkari, en kostnaður ætti að vera tiltölulega lítill, og ætti sá kostnaður að nást upp á þann hátt, að útvarpsnotendum myndi fjölga og útvarpinu því aukast tekjur. En óbeini hagnaðurinn af þessu yrði geysimikill. Það þarf oft að koma skeytum til sjómanna um það, hvar fisk eða beitu er að fá, og getur það verið ómögulegt á annan hátt. Þá er þetta nauðsynlegt fyrir alla menn, sem búa langt frá símstöð, og ég veit, að nokkrir menn í Norður-Ísafjarðarsýslu hafa keypt sér viðtæki í þeim tilgangi, að þau kæmu þeim að gagni við sendingu talskeyta.
Ég sé, að hv. þm. Dal. er ekki viðstaddur hér í deildinni, en þegar ég talaði við hann, var hann á móti því, að sending talskeyta væri falin útvarpsstöðinni. En einhverja lausn verður að finna í þessu máli, því þörfin er brýn fyrir alla hlutaðeigendur.