11.08.1931
Neðri deild: 28. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 11 í D-deild Alþingistíðinda. (1039)

91. mál, útvarp talskeyta

Vilmundur Jónsson:

Ég á brtt. á þskj. 146, sem fer fram á, að það sé útvarpsstöðin, sem annist þessar skeytasendingar. Hún er flutt eftir ósk sjómanna á Vestfjörðum, sem kvarta yfir því, að þeir heyri lítt eða ekki til loftskeytastöðvarinnar, en hinsvegar heyra þeir vel til útvarpsstöðvarinnar, hvar sem þeir eru og hvernig sem á stendur, svo vel, að þeir telja óþarfa að endurtaka skeytin frá henni, eins og gert er og verður að gera frá loftskeytastöðinni. Það getur vel verið, að það verði dýrara að láta útvarpið annast þessar skeytasendingar, en þær hafa líka því aðeins nokkra þýðingu, að skeytin heyrist. Ég get heldur ekki trúað, að það verði eins dýrt í reyndinni og haft er eftir verkfræðingnum, þó að útreikningur hans á verðmismuninum sé vafalaust fræðilega réttur. Ef útvarpsstöðin varpar þessum skeytum út þegar hún er í gangi hvort sem er, skil ég ekki, að þetta þurfi að muna svona miklu. En ef þetta er talið ómögulegt, þá verður að krefjast þess, að loftskeytastöðin verði gerð svo úr garði, að hún svari tilgangi sínum í þessu efni.