19.08.1931
Neðri deild: 33. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 971 í B-deild Alþingistíðinda. (1073)
169. mál, Landsbanki Íslands
1073Frsm. (Steingrímur Steinþórsson):
Frv. þetta er komið frá hv. Ed. og var flutt þar samkv. ósk hæstv. fjmrh. (TrÞ ) og að beiðni stj. Landsbankans. Fjhn. leggur til, að frv. verði samþ., en að öðru leyti skal vísað til grg. á þskj. 169.