20.07.1931
Efri deild: 5. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 20 í D-deild Alþingistíðinda. (1106)
13. mál, milliþinganefnd um kjördæmaskipun
Jón Baldvinsson:
Ég hafði ekki búizt við, að það yrði frá stj. borin fram till. til þess að taka kjördæmaskipunarmálið til almennrar umr. Ég hafði ekki búizt við því, eftir því, hvernig stj. tók undir þetta á þingi í vetur út af brtt. við stjórnarskrárfrv. hér í Ed. og eftir því, hvernig stjórnarflokkurinn kom fram við kosningarnar 12. júlí. Að vísu var það hjá einstaka manni, og í rauninni hjá hæstv. forsrh. líka, að það kom fram, að til mála kæmi að breyta kjördæmaskipuninni eitthvað. En það var skoðað til að friða hugi þeirra; sem órétti eru beittir, að einstaka framsóknarmaður þóttist vilja einhverja lítilsháttar breytingu á kjördæmaskipuninni. En það má segja, að batnandi manni er bezt að lifa, ef Framsóknarflokkurinn vill koma á réttlátri kjördæmaskipun í landinu. En till. segir í rauninni ekkert um þetta, og ýmsir álíta, að hæstv. stj. meini ekkert með þessari tillögu, annað en þá að draga málið á langinn.
Hæstv. forsrh. talaði um, að taka bæri slíkt stórmál til alvarlegrar meðferðar, en ég hjó eftir sömu orðum hjá honum og hv. 1. landsk., að hann gekk út frá því sem gefnu, að leiðir mundu skiljast, þegar til framkvæmdanna kæmi. En ef það er fyrirfram gefið, að hæstv. stj. ætli að halda við því ástandi, sem nú er, þá er það ekki nema leikaraskapur að skipa slíka nefnd.
Þó að þetta mál sé stórt, þá álít ég það ekki svo flókið, að þurfi að setja það í mþn. Hvað er það, sem þarf að rannsaka? Menn vita upp á hár, hvernig kjördæmaskipunin er nú og hvernig hún hefir reynzt í framkvæmdinni, hvernig lítill hluti þjóðarinnar, kannske ennþá minni en nú er, gæti fengið meiri hluta. Það gæti jafnvel hugsazt, að lítill hluti þjóðarinnar gæti fengið 36 þingmenn við kjördæmakosningar, ef atkv. skiptust svo. Það er þetta ástand, sem gerir það að verkum, að mikill meiri hluti þjóðarinnar hefir nú ekkert að segja á þingi, en lítill minni hluti, 1/3 atkv., ræður hér lögum og lofum. Það er ekki heilbrigt ástand, þegar svo er komið. Ég vil ekki að þessu sinni fara langt út í það, en þó vil ég geta þess, að Alþingi hefir aldrei áður verið svo skipað, að ríkisstj. hafi ekki haft með sér meiri hl. kjósenda, síðan stj. fluttist inn í landið. Árið 1908, þegar kosið var um sambandsmálið, þá höfðu uppkastsandstæðingar, sem þá mynduðu stjórn, nálega 6 þús. kjósendur, en frumvarpsfylgjendur rúmlega 3 þús. kjósendur. Þingið var þá í fullkomnu samræmi við þjóðarviljann, og hefir jafnan verið það síðan, þannig, að sá flokkur, sem farið hefir með völdin, hefir haft atkv.magn meiri hluta þjóðarinnar bak við sig. Árið 1927 hafði íhaldið 42% af atkvæðunum, eða 13 þús. atkv., og til viðbótar má telja nokkuð af utanflokkamönnum. Framsóknarflokkurinn hafði 9 þús. atkv. og Alþýðuflokkurinn yfir 6 þús. atkv. Og þegar Alþýðuflokkurinn veitti hlutleysi, þá þýddi það það, að stj. var skipuð á þingræðislegan hátt. Meiri hl. studdi hana eða lét hana hlutlausa.
Árið 1923 var meiri ruglingur á kosningunum, en ég ætla þó, að Borgaraflokkurinn hafi ásamt Sjálfstæðisflokknum haft meiri hluta kjósenda, eitthvað um 16 þús. atkv., sem þá var meiri hluti. Sama var að segja 1919 og 1916, að þá var meiri hluti landsmanna, sem studdi stjórnina. M. ö. o., svo hefir alltaf verið fram að þessu.
En nú er öðru máli að gegna. Nú eru aðeins 36% af kjósendum landsins, sem standa bak við þá stj., sem nú fer með völd og hefir 23 þm. af 42. Það er þetta ástand, sem fyrirsjáanlega þarf að laga. Það getur ekki verið svo áfram, að viss hluti af fólkinu geti haft öll völd, en hinir ekkert. Þá er hér ekki um lýðstjórnarfyrirkomulag að ræða, heldur einskonar forréttindi þeirra fámennu kjördæma, sem nú ráða lögum og lofum á Alþingi, enda ætla ég, að enginn neiti, að þetta er óeðlilegt ástand, svo að ekki þarf að hafa mörg orð um þetta.
Þá er þessi till., sem hér hefir verið borin fram. Ég get ekki greitt henni atkv. eins og hún liggur fyrir. Fyrst og fremst stendur þar ekkert um það, hvenær n. skuli hafa lokið störfum, og svo segir hún, að stj. og hennar flokkur eigi að hafa 4 af þessum 5 nefndarmönnum, svo að hún skammtar sér ríflegan meiri hl. Till. orðar þetta þannig, að Alþingi skuli kjósa 4 nefndarmennina. Eftir skipun þingsins nú mundi flokkur stjórnarinnar fá 3 menn, Sjálfstæðisflokkurinn einn, og svo skipar stj. sjálf fimmta manninn. Jafnaðarmenn mundu ekki geta komið neinum manni að, en stj. hafa fjóra menn í nefndinni. Það er hægt að ímynda sér, hvernig þetta verður túlkað í Tímanum, þegar nefndin skilar störfum, og sagt verður frá því, að fjórir nefndarmennirnir af fimm vildu halda við þetta þjóðlega þúsund ára gamla skipulag, eins og þeir orða það, og vafalaust verður þá líka sagt, að þetta sé „dómur þjóðarinnar“. Og þá er það komið fram, sem hæstv. forsrh. sagði, að þegar til framkvæmda kæmi, mundu leiðir skiljast.
Ef á að vera von um, að meiri árangur eða samstarfsemi verði í þessu, þá verður að fara eitthvað í þá átt, sem gert er í brtt. minni, á þskj. 71, sem sé, að miðstjórnir flokkanna skipi menn í þessa nefnd. Stj. skipar að vísu milliþinganefndina, en eftir minni till. gerir hún það eftir till. miðstjórna flokkanna, þannig, að Alþýðuflokkurinn fái einn mann, Framsóknarflokkurinn tvo og Sjálfstæðisflokkurinn tvo. N. kýs sér svo formann sjálf og verður hún að hafa lokið störfum áður en þing kemur saman í vetur. Þetta fyndist mér leiða til þess að athuga þetta mál á sanngjarnari hátt en stj. stingur upp á, að nefndin skuli starfa um óákveðinn tíma og að Framsóknarfl. hafi 4 af 5 nm. Ég verð því að mæla með því, að brtt. mín nái fram að ganga. Ég held ekki fast við orðalag till., heldur að efni hennar komist í þáltill., ef eitthvað verður afgr. frá þessu þingi viðvíkjandi kjördæmaskipunarmálinu í þessu efni.
Svo bíð ég eftir undirtektum hæstv. forsrh. og flokks hans, hvernig hann tekur undir brtt. mína, og atkv. mitt mun fara eftir því, hvernig þær undirtektir verða. Hér hefi ég rætt formshlið málsins, en mun síðar víkja að efnisbreytingunum.