08.08.1931
Efri deild: 24. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 42 í D-deild Alþingistíðinda. (1135)
13. mál, milliþinganefnd um kjördæmaskipun
Frsm. (Magnús Torfason):
Hv. 1. landsk. þóttist ekki skilja, hvernig á því stæði, að ég fylgdi ekki málinu úr hlaði með nokkrum orðum. En ég vil þá benda á það, að ég hefi sérstöðu hvað framsöguna snertir. Þetta er lausan., sem ég var kosinn ritari í, og lá þá ekki annað fyrir en till. stjórnarinnar. Þeirri till. hefði ég getað fylgt og fyrir henni hefði ég mælt. En nú hafa orðið samningar um það, að haga nefndarskipuninni öðruvísi, og því er ég frsm. málsins móti vilja mínum. Ég hefi gengið inn á þetta og mínir meðnefndarmenn, eins og nál. ber með sér, en eins og það liggur fyrir, þá óskum við framsóknarmenn að segja sem allra minnst um málið. Ég get því ekki sagt neitt annað um þetta en það, að þess er fastlega vænzt, að störfum n. verði lokið fyrir næsta þing. Og því get ég fylgt, því ég lít svo á, að mþn. eigi að vinna bæði fljótt og vel. En eins og hv. 2. landsk. veit, þá er það öðruvísi orðað en í hans till., þar sem sagt er, að n. eigi að lúka störfum fyrir næsta þing. En það getur verið, að málið verði skoðað svo rækilega og á svo víðum grundvelli, að þó að menn leggi sig alla fram, þá verði því ekki lokið fyrir næsta þing. En ég tel ekki rétt, þegar slíkar n. eru skipaðar, að þá sé fyrirfram farið út í pólitíska afstöðu. Vitanlega mun mþn. athuga málið vel og grandgæfilega, en það er ekki rétt fyrir n. í þinginu að taka fram fyrir hendurnar á henni.
Við ræðu hv. 1. landsk. hafði ég ekkert að athuga, því hún var að öllu leyti rétt flutt.
Svo brá hv. 2. landsk. á leik síðast í ræðu sinni og vildi láta vera svo sem sjálfstæðismenn væru miklu slyngari samningamenn en framsóknarmenn. Það er auðvitað ekki mitt að dæma um það. En svo mikið er víst, að þau tíðindi, sem hafa gerzt á 5 undanförnum árum, benda á það, að framsóknarmenn séu líka talsvert slyngir samningamenn og kunni að koma ár sinni vel fyrir borð. Ég veit, að hv. 2. landsk. er spámannlega vaxinn og telur sig kallaðan til að spá í eyðurnar. En ég ætla ekki að fara út í þá sálma. En það, sem fyrir mér vakir, er það, að það sé mikið unnið við það fyrir Sjálfstæðisflokkinn og eins fyrir Alþýðuflokkinn að hafa fengið stj. til viðtals um þetta mál og til að athuga það. Mér þykir leiðinlegt, hve mikið ber á afbrýðiseminni hjá hv. 2. landsk. Það er rétt eins og Sjálfstæðisflokkurinn sé búinn að sparka honum út úr bólinu.