30.07.1931
Neðri deild: 16. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 157 í B-deild Alþingistíðinda. (117)
1. mál, fjárlög 1932
Magnús Jónsson:
Ég er einn af þeim, sem eru í fjvn., og kemur það mér undarlega fyrir sjónir, að rétt í því að n. er að byrja að líta á frv. eftir 2. umr., þá er 3. umr. tilkynnt. Ég verð að láta í ljós undrun mína yfir því, að 3. umr. skuli eiga að fara fram áður en fjvn. hefir fengið tækifæri til að athuga frv.