14.08.1931
Neðri deild: 29. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 66 í D-deild Alþingistíðinda. (1171)
13. mál, milliþinganefnd um kjördæmaskipun
Magnús Guðmundsson:
Ég mun ekki gera það að kappsmáli, hvort málið fer í nefnd eða ekki, en vildi aðeins segja hv. 3. þm. Reykv. það, að þótt till. hv. 2. landsk. væri ekki samþ., þá var í engu horfið frá þeim grundvelli, sem kröfurnar um réttláta kjördæmaskipun byggjast á. Það er aðeins látið laust og óbundið, á hvaða grundvelli nefndin starfar, og menn hafa þar frjálsar hendur, en ég vil taka það fram fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins, að hann mun ekki hvika neitt frá þessu máli.
Það eina, sem samkomulag hefir orðið um auk sjálfrar nefndarskipunarinnar, er það, á hvern hátt nefndin skuli skipuð, og einnig hitt, að hún skuli hafa lokið störfum fyrir næsta þing. Náttúrlega væri bezt, að nefndin gæti orðið sammála um að starfa á sama grundvelli og till. hv. 2. landsk. fór fram á, og ég vil vona, að svo verði, en bregðist sú von, þýðir það drátt á málinu til næsta þings, en ekki heldur lengur.