14.08.1931
Neðri deild: 29. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 68 í D-deild Alþingistíðinda. (1176)

13. mál, milliþinganefnd um kjördæmaskipun

Magnús Jónsson:

Það var út af orðum hæstv. forsrh., sem ég hefi ástæðu til að segja nokkur orð. Hæstv. ráðh. var að tala um það, að vilji kjósendanna hefði ekki komið fram um þetta mál við síðustu kosningar. Það má vel vera, að vilji kjósendanna hafi ekki sýnt sig til fullnustu í málinu, en ég vil benda hæstv. ráðh. á það, að hann og hans flokkur gerði þetta mál algerlega að kosninganúmeri sínu. Það var stjórnarflokkurinn, sem tók þetta á dagskrá við kosningarnar. Hann notaði það sem átyllu í kosningunum, að sjálfstæðismenn vildu breyta kjördæmaskipuninni. En satt að segja vildu andstæðingar stj. ekki viðurkenna þetta, því þeir vildu láta hana ganga undir dóm kjósenda fyrir gerðir sínar. En stj. þorði það ekki og vildi svo fá kjósendur til að greiða atkv. um allt annað. Það væri gaman, ef hæstv. forsrh. gæti bent á einn einasta sjálfstæðismann, sem er annars ósammála flokknum í þessu efni. Hitt er satt, að ýmsir af sjálfstæðismönnum lýstu því yfir, að þeir væru ekki ráðnir í því, hvaða leið myndi heppilegust.

Af því að hæstv. forsrh. var að segja einhverjar tröllasögur af voðalega hættulegu samkomulagi milli sjálfstæðismanna og jafnaðarmanna, þá var nauðsynlegt fyrir sjálfstæðismenn að hrekja þessar skröksögur. Á fundi vestur í Dölum lýsti frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins yfir þeirri skoðun sinni, sem ég raunar vissi um áður, að hann væri með einmenningskjördæmum, en einhverjir sjálfstæðismenn munu hafa skorazt undan að ræða kjördæmaskipunarmálið, því að þeir vildu láta stj. ganga undir dóm kjósenda fyrir gerðir sínar. Það er alveg rétt, að kosningarnar skáru úr um það, hverjir vildu halda hinni ranglátu kjördæmaskipun, og það kom í ljós, að það var 1/3 hluti landsmanna, en 2/3 hlutar vildu umbætur á kjördæmaskipuninni.

Þá vil ég víkja nokkrum orðum að ræðu hv. 3. þm. Reykv., sem hefir verið að endurtaka Alþýðublaðssóninn um það, að sjálfstæðismenn séu búnir að víkja frá stefnu sinni í kjördæmaskipunarmálinu, og því gengið inn á samkomulagstilhögun. En sannleikurinn er nú sá, að þeir hafa einmitt fengið málið eitt skref áfram með því að fá mþn. sómasamlega skipaða. Allur þessi úlfaþytur er sprottinn af því, að í raun og veru alveg gagnslaust ákvæði var ekki tekið upp, og sem enginn efast um, að var í skipun mþn. alveg dauður bókstafur. Ef í n. hefðu verið skipaðir menn, sem höfðu aðra skoðun, þá hafði þetta ekkert að segja. Ef þetta ákvæði hefði verið tekið, þá hefði það getað valdið því, að rannsóknin hefði verið talin einhliða, og þannig stuðlað að því að tefja málið. Þeir, sem vilja halda hinni ranglátu kjördæmaskipun, hefðu getað sagt, að ekki væri búið að athuga nema eina hliðina, og allar hinar væru eftir. (HV: Það er einmitt verið að tefja málið). Ég fyrir mitt leyti er alveg ráðinn í því, að það þurfi að breyta kjördæmaskipuninni. En það er hægt á margan hátt. Ég veit ekki, hvort flokksmenn hv. 3. þm. Reykv. eru ráðnir í þessu, en þeir eru nú ætíð fljótir í því að hlaupa inn á ýmislegt. En þetta er umfangsmikið og vandasamt mál og þarf skoðunar í n. a. m. k. í 2–3 mánuði. Það er beinlínis hlægilegt af jafnaðarmönnum að setja málið á oddinn þess vegna. Hv. 3. þm. Reykv. á erfitt með að sýna, að sjálf stæðismenn hafi runnið frá stefnu sinni í kjördæmaskipunarmálinu. Því ámæli verður ekki komið á flokkinn. Stjórnarskrárfrv. sjálfstæðismanna stendur óhaggað, og þar er það, sem þetta ákvæði hefir þýðingu. Annars ætla ég að taka undir það með öðrum hv. þm., að ég ætla ekki að ræða efni till. Ég sé ekki ástæðu til þess. Ég hefi aðeins viljað taka þetta fram vegna ummæla 2 hv. þm.