14.08.1931
Neðri deild: 29. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 70 í D-deild Alþingistíðinda. (1177)
13. mál, milliþinganefnd um kjördæmaskipun
Forsrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Hv. 4 þm. Reykv. hafði eftir mér, að ég hefði sagt, að kosningin hefði ekki sagt neitt um vilja þjóðarinnar. En þetta sagði ég aldrei. Ég sagði, að það hefði ekki komið skýr yfirlýsing frá meiri hl. þjóðarinnar. — Útreikningana, sem hv. 4. þm. Reykv. kom með, hefir hann úr sínum blöðum, en þeir eru villandi og rangir. Það voru ekki svo fá atkv., sem kommúnistar fengu, en það er rangt að telja þau öðruhvoru megin. Þeir kusu ekki um kjördæmaskipunina, heldur þjóðskipulagið. Ef kommúnistar hafa stjórn í einhverju landi, þá koma þeir alls ekki á réttlátri kjördæmaskipun, því það eru aðeins einstöku menn hjá þeim, sem hafa mannréttindi. Sömul. voru það 2 menn, sem buðu sig fram utan flokka. Þeir lýstu því yfir, að þeir væru á móti þeirri kjördæmaskipun, sem hinir flokkarnir færu fram á. Það er því ekki einungis rangt að telja þá með atkv. hinna flokkanna, heldur á að draga þau frá og leggja þau við atkv. okkar framsóknarmanna. Þá er líka þess að gæta, að það voru ýmsir úr Sjálfstæðisflokknum, sem lýstu því yfir á fundum í Dalasýslu, Húnavatnssýslu og Skagafirði, sem ég var á, að þeir væru ekki með þessari kjördæmaskipun. Frambjóðandinn í Skagafirði sagði t. d., að hann væri ekki búinn að slá neinu föstu um þetta mál, því hann vildi tala við Framsókn um það. Og í ýmsum kjördæmum var sagt, að þetta mál væri alls ekki á dagskrá, og mér er kunnugt um að þeir fengu ýmsa til að kjósa sig á þessum grundvelli. Og um einn bónda í Mýrdal veit ég, að hann kaus Gísla Sveinsson, en sagði: „Ef ég kemst að því, að hann er með breyttri kjördæmaskipun, þá mun ég eindregið beita mér á móti honum við næstu kosningar“.
Það er ástæðulaust að telja fleira upp. Aðalatriðið er, að samkomulag hefir orðið um skipun n., þannig að hún er skipuð af öllum flokkum og á líkan hátt og Alþýðuflokkurinn hefir stungið upp á.