25.07.1931
Sameinað þing: 4. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 97 í D-deild Alþingistíðinda. (1204)

74. mál, gæsla hagsmuna Íslands út af Grænlandsmálum

Héðinn Valdimarsson:

Jafnaðarmenn eiga engan mann í utanríkismálanefnd á þessu þingi og geta því ekki rætt till. þar. En það er ómögulegt annað en greiða till. atkvæði. En hún er þó orðuð þannig, að ekki er hægt að sjá, á hvern hátt á að gæta réttinda Íslands, eða hve langt á að ganga í þessu efni.

Það eru sumir, sem leggja mikið upp úr hinum sögulegu rökum Íslendinga til Grænlands. En ég segi fyrir mitt leyti, að ég legg ekki mikið upp úr þeim. Á sama hátt ættu Norðmenn tilkall til Íslands. Núlifandi Íslendingar hafa ekkert gert til að helga sér landið. Og það hefði verið betra fyrir stórútgerðarmennina, sem tala mest um Grænland, að þeir hefðu sýnt á einhvern hátt í verkinu, að þeim þætti landið nýtilegt. Aftur á móti hafa hinar 2 þjóðir, sem nú deila um landið, meiri ástæðu til þess en við, þar sem þær hafa þó komið nálægt því, en við ekki. Norðmenn hafa reynt að nýta suma þá hluta landsins, sem Danir hafa ekki nýtt. Eskimóar sjálfir hafa ekki nýtt landið nema að mjög litlu leyti, og engin líkindi eru til þess, að þeim takist það einum. Það getur verið satt, að miklar auðlindir séu í landinu, og nú á síðustu tímum virðist svo, sem mikil fiskigengd sé við strendur þess. Það er líka vitanlegt, að Eskimóarnir geta ekki nýtt þetta land. Mér virðist, að sú eðlilega lausn á þessu máli væri sú, að hvorki Danir eða Norðmenn ráði yfir landinu, heldur sé það undir alþjóðlegum yfirráðum, og þó sérstakt tillit tekið til Eskimóanna. Ég vildi a. m. k. leggja áherzlu á það, að þó að hagsmuna Íslands verði þar gætt í atvinnulegu tilliti, þá geri það ekki tilkall til landvinninga þar á meðan okkar eigið land er að mjög miklu leyti óbyggt og ónotað.