04.08.1931
Neðri deild: 20. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 158 í B-deild Alþingistíðinda. (122)
1. mál, fjárlög 1932
Frsm. (Hannes Jónsson) [óyfirl.]:
Eins og hv. dm. sjá, liggur nú mikið fyrir af brtt. bæði frá fjvn. og einstökum hv. dm.
Þær breytingar, sem fjvn. gerir á áætlun fjárlagafrv. tekjumegin, eru allverulegar. N. leggur til, að tekjuáætl. hækki alls um 860 þús. kr. Með þessu móti eru tekjur ríkissjóðs orðnar hærri í fjárlagafrv. en þær hafa verið nokkurn tíma fyrr í meðferð þingsins. Ég býst því við, að ýmsir hv. þdm. muni telja, að teflt sé á tæpt vað hvað þessar áætlanir snertir. En einmitt vegna þess vill n. vænta, að hv. þdm. sé það ljóst, að þeir verði að fara varlegar nú í áttina til aukinna útgjalda heldur en oft áður hefir verið gert.
Brtt. þær, sem fjvn. ber fram við tekjuáætlun fjárlagafrv., eru þessar:
Við 2. gr. 1., að fasteignaskatturinn sé hækkaður um 50 þús. kr. Þessi skattur hefir á undanförnum árum reynzt töluvert hærri heldur en hann hefir verið áætlaður í fjárlagafrv., og þykir n. því líklegt, að þessi áætlun muni standast. Fasteignaskatturinn fer hækkandi um þessi áramót, vegna þess að eignir hækka í verði samkv. nýja fasteignamatinu.
Þá er brtt. við 2. gr. 2., að tekju- og eignarskattur verði einnig hækkaður um 50 þús. kr. Þessi liður er mjög óáreiðanlegur, sérstaklega í því árferði, sem nú er. Eignarskatturinn mun líklega halda sér nokkurn veginn að vísu, en tekjuskatturinn mun eflaust verða hærri en á undanförnum árum. Með þessari áætlun fjvn. er farið að sverfa mjög nærri því, sem verið hefir á sumum árum áður, og er því ekki hægt að fullyrða, að áætlunin muni standast.
Þá áætlar n. aukatekjur 70 þús. kr. hærri en áður var áætlað í fjárlagafrv. Ég geri ráð fyrir, að þessi áætlun sé nokkurn veginn örugg. En þegar farið er svona hátt, þá er ekki heldur hægt að búast við, að þessi liður muni fara neitt verulega fram úr áætlun.
Þá er vitagjaldið hækkað um 50 þús. kr. Þessar tekjur hafa farið vaxandi á undanförnum árum og eru orðnar allöruggur tekjustofn N. vonast eftir, að þessi áætlun sé nokkuð örugg, og leggur því til þessa hækkun á þessum lið.
Bifreiðaskatturinn hefir reynzt á undanförnum árum nokkuð mikið hærri en hann er nú áætlaður í fjárl. þessa árs, og leggur því n. til, að hann verði hækkaður um 20 þús. kr. Það má búast við, að hann verði nokkuð tryggur tekjustofn, og ætlar n., að það sé óhætt að hækka hann um þetta.
Um útflutningsgjald er það að segja, að meðaltal síðustu fjögra ára hefir verið 1 millj. 200 þús. kr., en n. leggur til, að þessi tekjuliður verði hækkaður um 50 þús. kr. Ég skal geta þess strax, að þetta er ef til vill ein af þeim áætlunum, sem n. hefir gengið óþarflega langt í að hækka. Og hún hefir að minnsta kosti gengið svo langt, að það má telja nokkurn veginn víst, að þessi tekjustofn fari ekki fram úr því, sem n. hefir áætlað hann. Og þá er náttúrlega of langt gengið af Alþ., ef það eru engar líkur fyrir því, að tekjurnar fari fram úr því, sem þær eru áætlaðar í fjárl.
Þá er það áfengisskatturinn; hann hefir n. lagt til, að verði hækkaður um 50 þús. kr. Þessi tekjustofn má teljast nokkuð tryggur, og hygg ég, að hann sé sæmilega gætilega áætlaður, þó hann verði hækkaður um þetta.
Tóbaksskatturinn hefir reynzt nokkuð öruggur tekjustofn, og 50 þús. kr. hækkun á honum, sem n. leggur til, mun vera nokkuð nærri sanni; hann hefir farið heldur hækkandi undanfarin ár. Sömuleiðis leggur nefndin til, að kaffi- og sykurtollurinn verði hækkaður um 100 þús. kr. Það er sama að segja um hann og tóbakstollinn, að hann hefir verið fastur tekjustofn og farið hækkandi, svo að á næsta ári er óhætt að búast við, að þessi áætlun muni geta staðizt.
Annað aðflutningsgjald hefir n. lagt til, að yrði hækkað um 20 þús. kr. Hér hefir ekki verið um stórfelldan tekjustofn að ræða, og ekki gott að segja, hvað þetta gjald muni nema miklu, en n. hyggur, að þetta muni láta nærri lagi.
Vörutollurinn hefir orðið mjög mikið hærri en hann er nú áætlaður í fjárl. þessa árs. En á það er að líta, að hann er mjög breytilegur tekjustofn, því það fer alveg eftir afkomu atvinnuveganna í landinu, hversu mikill hann verður. Það má því gera ráð fyrir, að hann verði mjög ótryggur tekjustofn á næstu árum, með því útliti, sem fram undan er fyrir atvinnuvegina, og virðist því ekki gerandi að fara við áætlun hans eftir reynslu undanfarandi góðæra. N. leggur þó til, að þessi tekjuliður verði hækkaður um 100 þús. kr.
Það má segja sama um verð- og vörutollinn, að sá tekjustofn er mjög óviss. Hann hefir gefið undanfarandi tvö ár að meðaltali 2 millj. og 300 þús. kr., en meðaltal síðustu fjögra ára hefir verið 1 millj. og 800 þús. kr. Þessi tollur er einn af allra óvinsælustu tekjustofnum ríkissjóðs, og er náttúrlega háður innflutningnum. Þó álítur n., að óhætt sé að áætla, að hann muni gefa meira af sér, en nú stendur í fjárl., að dæma eftir reynslunni á liðnum árum, og leggur n. því til, að hann verði hækkaður um l00 þús. kr.
Þá kemur gjald af sætindagerð. Þessi tekjustofn hefir farið vaxandi og virðist vera nokkuð tryggur. N. leggur til, að hann verði hækkaður um 50 þús. kr. eða tvöfaldaður frá því, sem nú er. Þessi lága áætlun hefir staðið í fjárl. undanfarið og hefir ekki verið færð í samræmi við undanfarandi reynslu. N. álítur, að þrátt fyrir þessa hækkun sé hann sæmilega gætilega áætlaður og leggur til, að hann verði hækkaður í 100 þús. kr.
Þá er það rekstrarhagnaður póstsjóðs. N. leggur til, að hann verði hækkaður nokkuð. Meðaltal síðustu fjögra ára, hefir verið um 610 þús. kr. tekjur, og n. leggur til, að tekjurnar verði áætlaðar um 600 þús. kr. Þær hafa farið stöðugt vaxandi á undanförnum árum, svo að úr 500 þús. kr., sem þær voru árið 1927, hafa þær hækkað í 710 þús. kr. á árinu 1930. Það má því álíta, að það sé sæmilega trygg áætlun, þó að þær verði hækkaðar um 50 þús. kr. eins og n. leggur til.
Sömuleiðis er það að segja um rekstrarhagnað Víneinkasölunnar, að hann hefir verið að meðaltali síðustu fjögur árin um 810 þús. kr., og þó miklu meiri 2 síðustu árin. N. telur því öruggt, að þessi tekjustofn gefi af sér 50 þús. kr. meira en hér er áætlað og gerir því þá brtt., að hann verði hækkaður um þá upphæð.
Menn hafa nú heyrt af því, sem ég hefi sagt, að fjvn. hefir gengið nokkuð langt í till. sínum um hækkun tekjuáætlunarinnar. Þessi óvenjulega hækkun, sem n. hefir gengið lengra í en nokkru sinni áður, er í samræmi við þá stefnu n. að komast sem næst réttu lagi í áætlun um tekjur og gjöld ríkissjóðs. Þetta er nauðsynlegt til þess, að þingið geti gert sér það ljóst, hverju það getur varið til útgjalda úr ríkissjóði, og hvað hv. d. má bjóða sér að bera fram af till. til aukinna útgjalda, fram yfir það, sem n. leggur til.
Nú hafa útgjöldin hjá n. vaxið um h. u. b. 860 þús. kr., og er meiri hl. þess til aukinna verklegra framkvæmda. Það, sem n., bæði við 2. og 3. umr., hefir lagt til, að unnið væri að verklegum framkvæmdum, nemur rúmlega 700 þús. kr. Það er því ómögulegt að segja, að n. hafi verið smátæk í till. sínum um, hvað verja skildi miklu fé til þessara framkvæmda. Og það má því ætla, að hv. þdm. muni vel líka till. n. og láta við það sitja, sem hún hefir lagt til í því efni, en ekki fara að bæta stórkostlega við þær eða, ef þeim sýnist ekki stefna n. í fjárveitingum rétt eða heppileg, að þeir þá leggi til, að eitthvað verði fellt niður af því, sem hún hefir lagt til, og annað tekið upp í staðinn, sem þeir álitu réttara eða heppilegra.
Nú hafa hv. þdm. borið fram allmargar brtt. við þessa umr., sem samtals nema á þriðja hundrað þús. kr. Og ef þær eiga allar að koma ofan á útgjaldatill. n., þá er það auðvitað, að tekjuáætlunin hrekkur ekki til að fullnægja þeim öllum. Og þá er komið að því, að það er sjáanlegt, að tekjur ríkissjóðs hrykkju ekki fyrir útgjöldunum, svo að fram kæmi rekstrarhalli. Og þá mætti búast við, að tekjur næstu ára færu mest í það að koma af þessum rekstrarhalla á ríkisbúskapnum.
Ég skal þá fara nokkrum orðum um einstakar útgjaldatill. n., og er þá fyrst brtt. IV, á þskj. 183. Þetta er aðeins áætlunaratriði um aðra vexti en af föstum lánum ríkissjóðs. Það er vitanlegt, að ríkissjóður þarf að borga aðra vexti en af föstum lánum, en til þess hefir aldrei neitt verið áætlað í fjárl. Þetta er ákaflega ógætileg aðferð, og er það stefna n. að laga þetta. N. telur sjálfsagt hér, eins og í öllum öðrum áætlunum sínum, að komast að því réttasta, sem unnt er, um útgjöldin. N. leggur því til, að hætt verði við nýjum lið: „Aðrir vextir 90000 kr.“ Þetta er auðvitað að nokkru leyti út í bláinn, því að það er náttúrlega ekki hægt að segja, ekki einu sinni nokkurnveginn nákvæmlega, hvað þessi útgjöld verða há. En það er ekki ósennilegt, að þau verði ekki minni en hér er farið fram á, að veitt verði í þessu augnamiði.
Þá er það brtt. VI, frá fjvn., um læknisvitjanastyrk. Það er styrkur, sem veittur er til einstakra sveita, sem langt eða erfitt eiga til læknis, til þess að létta mönnum þann kostnað, sem af læknisvitjunum þar leiðir, og er lagt til, að hann verði hækkaður um 300 kr., sem gangi til Nauteyrarhrepps. Þetta er sem stendur læknislaust hérað, og er lagt til, að þetta sé veitt með því skilyrði, að það sé aðeins meðan héraðið er læknislaust. Það hefir verið veittur slíkur styrkur til annara héraða, og er ekki nema rétt og sjálfsagt, að eins sé gert hér. Héraðið er afskekkt og erfitt að vitja þaðan læknis til Ísafjarðar, en enginn læknir nær.
Þá er það brtt. VIII, á sama þskj., nýr liður, til Halldórs Arnórssonar 3000 kr., til að kynna sé nýjungar í gervilimagerð erlendis og til verkfærakaupa. N. var að vísu klofin um þetta atriði, en meiri hl. leggur til, að þessi styrkur verði veittur. Það mætti náttúrlega margt segja til meðmæla þessari fjárv., svo sem um nauðsynina á því að afla gerfilima innanlands, þar sem það eru margir, sem þurfa á þeim að halda, en miklu kostnaðarminna að fá þá smíðaða hér en að sigla til að fá þá.
Þá er brtt. á sama þskj. undir XI, nýir liðir: Til Jökulsárhliðarvegar 8000 kr. og til þjóðvegar í Geithellnahreppi 5000 kr. Það var gert ráð fyrir í fjárl. þessa árs, að Jökulsárhliðarveginum yrði unnið að í ár, en að því er ég hygg, hafa þær framkvæmdir verið látnar falla niður. Þetta er því að nokkru leyti endurveiting, og leggur n. því til, að á næsta ári verði varið þessum 8000 kr. Um þenna þjóðvegaspotta í Geithellnahreppi hefir n. ekki annað segja en það, að það liggja fyrir mjög sterkar óskir um, að þarna verði unnið eitthvað á næsta ári. Og þar sem litið er ætlað til þjóðvega á Austurlandi í fjárlagafrv., telur n. rétt að láta þessa fjárv. ganga til vegagerðar þarna austurfrá.
Þá hefir n. lagt til með XIV. brtt., að veittar verði til brúargerða 62 þús. kr. meira en nú er í frv., eða alls 112 þús. kr., með þeirri aths., að þessari viðbót verði varið til undirbúnings brúargerð á Þverá á Rangárvöllum, ef fé er fyrir hendi. Ég þarf ekki að mæla sérstaklega fyrir þessari till.; það hefir verið gert áður, og öllum hv. þdm. mun vera kunnugt um þá brýnu nauðsyn, sem á því er, að ráða bót á samgönguhömlunum, sem Rangárvallasýsla og næstu sýslurnar þar fyrir austan eiga við að búa. En þar sem er um svo stóra upphæð að ræða til einnar brúar, þá fannst n. rétt að setja þá aths. við liðinn, að upphæðin yrði ekki veitt nema tekjur hrykkju fyrir þeim greiðslum öðrum, sem áætlaðar eru í fjárlagafrv.
Þá hefir n. lagt til með XVI. brtt. á sama þskj., að fjallvegaféð verði hækkað úr 15 þús. kr. í 25 þús. kr. Þessi fjárv. hefir undanfarið verið 25 þús. kr., og hafði stj., er hún samdi fjárlagafrv., lækkað hana úr 25 þús. kr. í 15 þús. kr. Nú veit n., að af fjallvegafénu verður varið á þessu ári talsvert miklum hluta til áframhalds á Svalbarðseyrarvegi á Vaðlaheiði, sem nauðsynlegt er að koma í samband við Vaðlaheiðarveg. Auk þess hafa legið fyrir fjárbeiðnir til ýmsra fjallvega, m. a. til vegar á Laxárdalsheiði 10 þús. kr. og til vegar yfir Skersheiði 5000 kr. N. sér ekki, að það sé mögulegt að sinna öllum þessum fjárbeiðnum að þessu sinni, en vill leggja til, að fjárv. til fjallvega verði hin sama og undanfarin ár. En það mun mega telja víst, að af þessu fé verði ekki hægt að fullnægja öllum kröfum um fjárframlög til þessara vegagerða, sérstaklega ekki þeim, sem hæst fara, eins og t. d. 10 þús. kr. til Laxárdalsheiðarvegar, því það yrði þá Laxárdalsheiði ein, sem fengi 2/5 hluta af öllu því fé, sem verja á til fjallvega. En þetta verður auðvitað að fara eftir þörf og nauðsyn á hverjum stað, og n. sér sér ekki fært að binda ákveðnar upphæðir við einstaka staði, en vill leggja það á vald vegamálastj., sem veit bezt, hvar þörfin er mest, hvar unnið sé fyrir þetta fé. N. hefir ekki séð sér fært að fara lengra í þessum fjárv. en undanfarið, og leggur því til, að veitt verði sama upphæð til fjallvega og verið hefir.
Þá er það brtt. XXII, á sama þskj. Það er til þess að reisa nýja vita. N. hefir ekki áður gert neinar till. um vitabyggingar, og hefði viljað vera rífari á roðum sínum til þeirra en hún hefir verið að þessu sinni, en hefir ekki séð sér fært að leggja til, að meiru verði varið til þeirra nú en 65 þús. kr. N. hefir ekki gert neinar till. um, hvaða vitar skuli reistir fyrir þetta fé. Hún telur sjálfsagt, að vitamálastjóri og stjórnin sé látin skera úr um það, hvar sé mest þörf fyrir vita, og álítur, að þeim megi treysta til að ráða bezt fram úr því.
Þá er það brtt. XXVII, um fjárv. til bryggjugerða og lendingarbóta. N. leggur til, að sú fjárv. verði hækkuð úr 20 þús. kr. í 32500 kr., og er það af því, að n. hafði í huga, þegar hún lagði til þessa auknu fjárv., endurveiting á fé til bryggju á Vopnafirði, sem er fyrsta fjárv., 8500 kr., og til bryggju á Vatnsleysuströnd 4000 kr.
Hér lá fyrir við 2. umr. ósk um fjárv. til bryggju á Vatnsleysuströnd, og var beðið um 8500 kr. N. hefir fengið að vita — eða það er ekki hægt að sjá annað af því, sem fyrir liggur um þær framkvæmdir — að til þessarar bryggjugerðar hafi verið varið um 12 þús. kr., og eftir þeirri reglu, sem fylgt hefir verið um fjárv. til bryggjugerða, ættu 4000 kr. af þessari upphæð að koma frá ríkinu. Þessi upphæð leggur n. til, að verði veitt í þessum fjárl.
Þá er það brtt. undir XXIX. Það er nýr liður, til útgáfu rits um leiðbeiningar á siglingaleiðum við Ísland. Vitamálastjóri hefir lagt mikla áherzlu á að fá fjárv. til að gefa þetta rit út. N. sér og viðurkennir nauðsynina á því, að slíkt rit verði gefið út á íslenzku, og vitamálastjóri álítur, að það muni borga sig bráðlega með útsöluverðinu, því það muni verða mikið keypt.
Þá er brtt. XXXVI; hún er við 15. gr. 18, til Leikfélags Reykjavíkur, að bætt sé við athugasemdina: „Enda leyfi það, að útvarpað sé án endurgjalds síðustu sýningu hvers leiks“. Þessi brtt. frá n. er borin fram samkv. ósk frá útvarpsráðinu, og n. gat fallizt á, að hér væri um réttmætar óskir að ræða frá þess hálfu og aths. var samþ. í n.
Þá er brtt. XLVI; það er nýr liður, til Fiskifélagsins, til þess að annast birtingu útvarpaðra veðurfregna í verstöðvum landsins, 5000 kr. Það stendur í þskj. 50000 kr., en á að vera 5000 kr. Þetta er gert vegna þess, að það er í ráði, að breyt. verði gerð á tilkynningum um veðurfregnir. Landssíminn hefir, sem kunnugt er, haft þetta á hendi, en nú elur landssímastjóri það heppilegt að losa símann við þetta, því landssíminn hafi eytt of miklum tíma í þetta frá öðrum störfum. Nú er svo til ætlazt, að veðurfregnunum verði framvegis útvarpað, en þá þarf að sjá um, að tilkynningar um veðurfregnir séu birtar í verstöðvunum og annarsstaðar þar, sem þörf er á, úti um landið. Það verkefni hefir síminn haft með höndum, með því að birta veðurfregnir á ýmsum landssímastöðvum. En þar sem hér á að taka upp nýja tilhögun í þessu, þarf að fá nýja menn til að annast þessar tilkynningar, og er það álitið bezt komið í höndum Fiskifélagsins. En það hefir náttúrlega nokkurn kostnað í för með sér. En landssímastjóri álítur, að það muni borga sig fyrir ríkissjóð, því tekjur símans muni aukast meira en þessum kostnaði nemur.
Þá er brtt. LII, í 3 liðum. Sá fyrsti er til Elliheimilisins Grundar í Reykjavík. 5000 kr. byggingarstyrkur. Fyrir n. lá beiðni um miklu hærri upphæð, sem hún sá sér ekki fært að verða við, en n. gat fallizt á, eða meiri hl. hennar, að 5000 kr. yrðu veittar í þessu skyni. Þá eru 2 brtt., sem koma af sjálfu sér, við 18. gr. II. c. 10 (til Einars Jónssonar), að liðurinn falli niður, því að maðurinn er dáinn. Hin er við 18. gr. c. 13, um að veita Magnúsi prófasti Bjarnarsyni 355 kr. styrk. Þetta er samkv. venju um styrki til uppgjafapresta, og sér n. ekki ástæðu til annars en að þessi prestur fái að njóta sama styrks og aðrir uppgjafaprestar.
Þá er brtt. LVI. 1, við 18. gr. II. f. 18, um að liðurinn falli niður. Þetta er leiðrétting á sama hátt og brtt. LII. 2; maðurinn er dáinn. Þá er brtt. LVI. 2, um að veita Hedvig Blöndal, ekkju Óla Blöndals póstritara, 300 kr. á ári, auk 100 kr. með hverju barni hennar í ómegð, alls 600 kr. Þetta er samkv. viðtekinni venju um styrki til ekkna póstmanna. Brtt. LVI. 3, við 18. gr. II. i. 6 (Oddný Guðmundsdóttir), um að liðurinn falli burt, er leiðrétting, því að hún er dáin.
Þá er brtt. merkt LX við 18. gr. II.i.59: 1. a. til Ingveldar Guðmundsdóttur, ekkju Erlendar Zakaríassonar 300 kr.; b. til Sigríðar Pálsdóttur, ekkju Gunnlaugs Indriðasonar 400 kr. Sér n. ekki ástæðu til annars en að veita þessum tveim ekkjum fé þetta.
Óviss útgjöld hafa verið hækkuð úr 100 þús. kr. upp í 150 þús. Þessi liður hefir í fjárlagafrv. alltaf verið áætlaður 100 þús. kr. síðan 1922, en hefir í reyndinni farið langt fram úr því, að meðaltali 250 þús. kr. á ári. Nær það því auðsjáanlega engri átt að áætla hér aðeins 100 þús. kr. Má þó gera ráð fyrir nokkrum létti á þessari grein í endurgreiddum tollum o. s. frv. N. leggur því til, að þessi liður verði áætlaður 150 þús. kr.
Þá eru nokkur heimildarákvæði, sem n. leggur til, að hætt verði inn í 22. gr. á sama þskj.: 1. Við 22. gr. I. (Eimskipafélagið) a. fyrir „85000“ kemur: 150000; b. aftan við liðinn bætist: „Enda veitist ríkisstjórninni aðstaða til athugunar og íhlutunar um rekstur þess“.
Eimskipafélagið hefir, eins og öllum hv. þm. mun kunnugt, átt erfitt uppdráttar síðastl. ár og orðið fyrir talsverðum tekjuhalla. Má slíkt ekki eiga sér stað til lengdar, og vill n. því leggja til, að hlaupið verði undir bagga með því. Hinsvegar ætlast n. til, að Eimskipafél. sjálft geri allt það, er verða má til sparnaðar, og skili heilbrigðari rekstrarafkomu fyrir næsta ár en áður. Hvort það tekst, verður reynslan að skera úr, en n. sýnist ekki mega lengur við svo búið standa. 2. Við 22. gr. IV. nýr liður, um að ábyrgjast lán til Síldareinkasölu Íslands. Skulu þau lán endurgreiðast að fullu áður en nokkrum síldareiganda verður greitt meira en 18 kr. á tunnu af saltsíld, að meðtöldu andvirði umbúða og verkunarkostnaði, eða tilsvarandi upphæð fyrir öðruvísi verkaða síld. Ábyrgð ríkissjóðs gildir til ársloka 1932 og skal aldrei nema hærri upphæð en svo, að hún og varasjóður einkasölunnar á hverjum tíma nemi samt. 500 þús. kr.
Við 2. umr. lá fyrir brtt. um það, að ríkið ábyrgðist 1 millj. kr., en nú er ábyrgðin ½ millj., og virðist n. nóg, að það verði eins hér eftir. — Hefi ég þá farið nokkuð fljótt yfir brtt. þessar, eins og þær hafa komið fram frá n. hálfu, og vona ég, að hv. þm. sjái, að sumir tekjuliðir eru varlega áætlaðir með það fyrir augum, að ætla sæmilega fyrir útgjöldum ríkissjóðs. Er samt sem áður nóg pláss fyrir tekjuauka, því að óhjákvæmilegt er, að láðst hafi að áætla ýmsa útgjaldaliði nógu hátt. Eru miklar líkur til, að sumir liðir, eins og fjárframlög til sýsluvega, fari fram úr áætlun, sérstaklega, ef kröfum þjóðarinnar á þessu sviði ætti að verða fullnægt, því að þær eru nú orðnar svo miklar, að áætlað fé yrði allt of lítið. Vil ég láta þá ósk mína í ljós, að hv. þdm. verði nokkru varkárari í afgr. fjárl. en sumar till., er fyrir liggja, gefa tilefni til að ætla. Vona ég, að þeir finni til ábyrgðar þeirrar, er á þeim hvílir um afgr. fjárl. Má vel vera, að fjvn. hafi ekki tekizt sem skyldi að áætla fyrir öllum þeim framkvæmdum, sem nauðsynlegar eru, en ef eitthvað vantar, þá verður að fella niður aðra liði, sem minna varða, til jafnaðar. Fjvn. varð að gera till. um, hvernig verja skyldi fé því, er hún taldi líklegt, að kæmi í ríkissjóð, með þeim tekjuliðum, sem nú eru til. Hefir hún reynt að láta féð renna til þeirra framkvæmda, sem líklegastar væru til þjóðnytja. E. t. v. má eitthvað finna að ýmsum smærri till., en þá má á það benda, að fleirum hefir stundum skjátlazt.