04.08.1931
Neðri deild: 20. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 168 í B-deild Alþingistíðinda. (123)
1. mál, fjárlög 1932
Magnús Guðmundsson:
Ég vil leyfa mér að mæla með nokkrum brtt. mínum, þó að mér skiljist sem ekki muni blása byrlega fyrir þeim, eftir þeim upplýsingum hv. þm. V.-Húnv., að fjvn. hafi þegar ráðstafað öllu fé, sem til er.
Við 2. umr. flutti ég brtt. og fór þar fram á eftirlaun handa Ólafi Stephensen. Fór ég fram á, að fjvn. athugaði málið og tæki það til 3. umr. Undrar mig það, að hún hefir ekki gert þetta. Vona ég, að hv. fjvn. leggist ekki á móti þessum litla styrk — 550 kr. — til þessa fátæka, gamla prests. Hefi ég frétt, að hv. n. hafi haft það út á till. mína að setja, að ég hafi ekki komið með beiðni frá biskupi, en ég vona, að prestur verði ekki látinn gjalda þess, að mér hefir láðst að fara til biskups í þessum erindum.
Þá er 2. brtt., sem ég bar fram ásamt hv. þm. Borgf. þess efnis, að ríkið kaupi hús sýslumannsins í Borgarnesi með þeim skilmálum, sem stj. og sýslumanni kemur saman um. Hér stendur svo á, að í nóv. 1920 brann hús sýslumanns og allir innanhúsmunir hans, skjöl og munir tilheyrandi embættinu og póstafgreiðslunni, sem hann hafði þá á hendi. Á þingi 1921 var ákveðið að veita honum 60 þús. kr. lán til að byggja yfir sig og póstafgreiðsluna. Byggði hann stærra en þurfti vegna sýslumannsembættisins, til þess að póstafgreiðslan gæti verið þar líka, og var lánið veitt með tilliti til þess. En nú er búið að taka af honum póstafgreiðsluna, svo að það er orðið of dýrt fyrir hann að búa þarna. Fer hann nú fram á það, að ríkið kaupi af sér húsið, og myndi hann þó að sjálfsögðu leigja þarna áfram. Sýslumaður getur ekki með þeim launum, sem hann hefir, staðið straum af vöxtum og afborgunum þessa stóra láns. Vona ég því, að hv. fjvn. og hv. dm. amist ekki við því, sem hér er farið fram á. Myndi þetta ekki leiða af sér tilfinnanleg útgjöld fyrir ríkissjóð, en talsvert myndi hinsvegar koma upp í þau í leigugreiðslu frá sýslumanni.
Fleiri brtt. held. ég ekki, að ég eigi hér, sem þörf er á að mæla fyrir sérstaklega. En út af því, sem hv. frsm. sagði um hækkun á fjallvegafénu, vil ég leyfa mér að ganga út frá, að af því fé verði veitt til Laxárdalsheiðarvegar í Skagafirði, að minnsta kosti hlutfallslega við það fé, sem fer til hins fjallvegarins, sem hann nefndi. (HJ: Það þarf ekki að reikna þetta í hlutfallalíkingum). Ekki í hlutfallalíkingum, en í hlutföllum. Við 2. umr. var farið fram á það við okkur þm. Skagf., að við tækjum aftur till., er við fluttum þá, um fjárframlag til Laxárdalsheiðarvegarins, til þess að hv. fjvn. gæti athugað málið. Nú hefir n. flutt till. um að hækka framlagið til fjallvega. Höfum við því fulla heimild til þess að ganga út frá því, að talsverður hluti hækkunarinnar gangi til þeirra vegagerða, sem við nefndum í till. okkar. (HJ: Nefndin ætlast til þess). Það er gott að fá skýlausa viðurkenningu um þetta frá hv. frsm.
Í nál. hv. fjvn. í fyrra, um fjárl. þessa árs, var það tekið fram, að af fé því, sem þá var veitt til símalagninga, skyldi taka fé til símalínu frá Víðimýri að Goðdölum í Skagafirði. En þessi símalína verður ekki lögð í ár. Þetta vil ég harðlega átelja, því að það er algerlega óheimilt hæstv. stj. að virða þannig að vettugi fjárveitingar þingsins. Væri ekkert við þessu að segja, ef féð væri ekki látið renna annað, en þá þykir mér skörin fara að færast upp í bekkinn, þegar stj. tekur það upp hjá sjálfri sér að láta vinna hitt og annað fyrir þetta sama fé. Og það virðist sem hv. fjvn. áliti þetta rétt og sjálfsagt. Skil ég ekki, hvers vegna fjvn. er að jafna niður fjárveitingum á héruðin, ef stj. fer alls ekki eftir því.
Ég hjó eftir því hjá hv. frsm., að hann sagði, að Eimskipafél. yrði að spara eins og unnt væri. Hefi ég sízt á móti því, að Eimskipafél. spari, enda er mér ekki kunnugt um neina sérstaka eyðslu Eimskipafélagsins. En einn er þó sá liður, sem Eimskipafél. má alls ekki spara á, en það eru viðkomur á smáhöfnum úti um landið. Er það að sönnu dýrt fyrir félagið að halda uppi strandferðum, en mjög mikið undir því komið, að smáhafnir fari ekki á mis við viðkomur skipanna.
Að vísu myndi Eimskipafél. geta sýnt betri afkomu, með því að fella niður viðkomur á smáhöfnum, en það myndi koma því harðara niður á íbúum hlutaðeigandi héraða. Vörur, sem flytja þyrfti milli skipa, hlytu að verða héraðsbúum miklu dýrari.
Þá verð ég að víkja ofurlítið að hækkunartill. hv. fjvn. á tekjubálkinum. Sé ég, að n. ætlar að hækka tekjuáætlun um allt að 1 millj. kr. Verð ég að segja, að ef þetta er óhætt, þá hlýtur að verða mikill tekjuafgangur á þessu ári. Allir hljóta að viðurkenna, að kreppan mun koma harðar niður á ríkissjóði næsta ár en í ár, eins og sést á því, sem hv. frsm. upplýsti, að tekjur ríkissjóðs hafi fram að 1. júlí þ. á. verið þær sömu og 1930, sem var bezta tekjuár, sem nokkru sinni hefir komið yfir Ísland. Er af þessu ljóst, að kreppan hefir ekki komið neitt við ríkissjóð fram að 1. júlí í sumar. Hlýtur að verða mikill afgangur tekna á þessu ári, ef áætlun fjvn. stenzt. Hvort svo verður, fullyrði ég ekkert um, en mér virðist sem flest bendi til þess, að afgangurinn verði ekki eins mikill og við hefði mátt búast, af því að ríkissjóður hefir orðið að taka ½ millj. kr. lán í júlí þ. á. til þess að standast dagleg útgjöld. Datt mér í hug, að þetta gæti ef til vill stafað af því, að búið væri að borga svo mikið af gjöldum yfirstandandi árs, og beiddist ég þess því af hæstv. fjmrh., að hann léti mér í té yfirlit um tekjur og gjöld þessa árs. Hefi ég nú fengið þetta yfirlit, og samkv. því hafa gjöld ríkissjóðs þessa 6 mánuði, sem liðnir eru á árinu, numið rúmum 6 millj. kr., en tekjurnar hinsvegar um 4½ millj. kr. Mismunurinn hefði átt að vera greiddur til bráðabirgða úr sjóði ríkisins, en sjóðseign ríkisins mun hafa verið um 5,7 millj. kr. í árslok 1929. Nú hefir hv. frsm. n. upplýst það, að orðið hafi 1 millj. kr. halli á ríkisbúskapnum árið 1930, og leiðir af því, að því er mér skilst, að sjóðseign ríkisins hafi átt að nema um 4,7 millj kr. í árslok 1930. Þessa sjóðseign hlýtur stj. að hafa haft til meðferðar fyrri hl. þessa árs, því að þótt peningarnir hafi ekki allir verið komnir inn l. jan. 1930, þá hafa þeir hlotið að koma inn smátt og smátt á árinu, og 1. júlí hefði þetta allt átt að vera komið inn eða svo til. Að þessu athuguðu verð ég að segja það, að mér kemur það spánskt fyrir, að ekki skuli vera nóg fé í sjóði til að standast dagleg útgjöld ríkisins, heldur skuli nú þurfa að taka bráðabirgðalán í því skyni. Nú veit ég að vísu, að júlímán. er einn mesti gjaldamánuður ríkissjóðs, en þó að gert væri ráð fyrir 2 millj. kr. gjöldum þenna mánuð eða helmingi meiru en orðið hefir til jafnaðar hina mánuði ársins, eftir því sem hæstv. stj. hefir gefið upp, ætti samt að vera eftir mikið fé í sjóði ríkisins. Að eigi skuli hafa verið nóg fé í sjóði fyrir útgjöldum ríkisins, get ég ekki skýrt fyrir mér nema á tvo vegu: Annaðhvort að gjöld ársins 1930 hafi verið meiri en upp hefir verið vefið og tekjuhalli ársins því meiri en talið hefir verið, eða þá að vantalin eru enn gjöld fyrri hluta ársins 1931. Hvort fremur er af þessu tvennu, skal ég ekkert segja um. Má og vel vera, að hvorutveggja sé til að dreifa. Ég geri ráð fyrir, að hv. frsm. n. hafi athugað þetta, og vænti því þess, að hann gefi þær skýringar, sem hann hefir á þessu að gefa.
Ég læt svo úttalað um þetta mál að sinni. Ég geri ráð fyrir, að hv. samþm. minn muni mæla með þeirri till., sem ég hefi flutt með honum, (183, XXVIII), og ennfremur, að hv. þm. V.-Sk. muni tala fyrir þeirri brtt., sem ég flyt með honum (183, LXI), og get ég því látið lokið máli mínu að þessu sinni.