15.08.1931
Neðri deild: 30. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 118 í D-deild Alþingistíðinda. (1271)

180. mál, athugasemdir yfirskoðunarmanna landsreikningsins 1929

Hannes Jónsson [óyfirl.]:

Það er alltaf við og við verið að slengja fram blekkingum í sambandi við landsreikninginn 1929, aðeins til þess að rugla menn í því, hvað rétt er.

Hv. 2. þm. Reykv. var að taka niðurstöður á tölum um út- og innborganir á reikningum ríkissjóðs og fékk út 8 millj., en það eru 7 millj. Þar frá dró hann greiðslur samkv. sérstökum l., en engu síður má draga frá greiðslur til Eimskipafél. Ísl. og framlag til Landsbankans í sjóðreikningi bankans, ef hann skilur það reikningsform. Og hann mætti líka líta á sjálfar innog útborganirnar, og þá myndi hann komast að raun um, að afborganir lána eru hærri en gert er ráð fyrir. Ég hefi því miður ekki tækifæri til að sundurliða þetta allt, en menn ættu ekki að vera að bera fram slíkar fjarstæður hvað ofan í annað. Annars get ég bent á nokkrar upphæðir. Í 13. gr. 850 þús., en þar er ekki allt umframgreiðsla, og í 16. gr. eru það 180 þús., og er þá komið á aðra millj., sem má draga frá 2½ millj. Ég geri ráð fyrir, að hv. 2. þm. Reykv. viti umframgreiðslur til vega og brúa. En það er ekki rétt að gera það, þó þessi umframveiting hafi orðið, því það var gert ráð fyrir, að þessar framkvæmdir þyrfti að inna af höndum. Ég skal ekki halda áfram að verja þetta mikið, en á þessum liðum er það vel forsvaranlegt.

Svo má benda á liði, þar sem er mikil umframgreiðsla, eins og berklavarnakostnaðinn, sem er hátt á annað hundrað þús. Þessi liður hefir alltaf farið fram úr áætlun og að meðaltali hátt á annað hundrað þús. Svo er það einn liður nærri 100 þús. kr., endurgreiddur tollur, og það mætti sjálfsagt skýra það nánar og draga í sundur, ef þörf væri á því, hvað af þessum umframgreiðslum eru greiðslur, sem ómögulegt er að komast hjá.

Út af skriflegu brtt. vil ég segja það, að mér virðist sem hún geti komizt að og álít betur fara, ef hún verður samþ. Það er réttmætt og gott, að ein stofnun framkvæmi þessa skiptingu, heldur en að það fari eftir því, hvaða stjórn fer með völdin, og þá er kannske farið eftir mismunandi reglum. Það, sem fyrir mér vakir, er, að þetta megi vera ljóst fyrir alla menn og því megi trúa, sem þar stendur.

Um brtt. frá hv. 2. þm. Reykv. á þskj. 266 er það að segja, að ég hefi ekki getað fallizt á, að hún geti heyrt undir fyrirsögn till. á þskj. 180. Endurskoðunin hefir aldrei gengið svo langt, að hún gæfi tilefni til till., og það er mikill skoðanamunur um það, hvað óhjákvæmilega verði að greiða af höndum.

Mér fannst hv. 2. þm. Reykv. ganga út frá því, að till. hans yrði felld, þar sem samskonar till. hefði verið felld í sambandi við fjárl. Ég skil ekki í, hvers vegna hv. þm. er að bera till. fram, ef hann er svona hárviss um, að hún verði felld. Um mína till. er það að segja, að ég álít, að hún væri til mikilla bóta, ef samþ. yrði. Hv. þm. virtist undrast þá formfestu, sem hún bæri með sér. Ég skal fúslega játa, að fyrir mér vakti það eitt, að fá handhægt form fyrir landsreikningana, og vona ég, að hv. þm. sjái nauðsyn þess máls ekki síður en ég.