15.08.1931
Neðri deild: 30. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 120 í D-deild Alþingistíðinda. (1274)
180. mál, athugasemdir yfirskoðunarmanna landsreikningsins 1929
Einar Arnórsson:
Hv. þm. V.-Húnv. misskildi mig, þegar hann hélt, að ég með till. minni væri að vita allar umframgreiðslur. Þetta var ekki tilgangur minn. Hann nefndi sjálfur einn lið, þar sem greitt er fram yfir tiltekna upphæð fjárlaga, sem mér kemur ekki til hugar að vita, og það er kostnaður við berklavarnir, en ég vil fyrst og fremst takmarka þær greiðslur, sem ekki hafa við neinar áætlunargreinar fjárl. að styðjast, og því næst vil ég ekki, að neinni stj. haldist uppi að greiða upphæðir, sumar allháar, án allrar heimildar og án allrar nauðsynjar, eins og gert hefir verið undanfarin ár. Játning hv. þm. um það, að hann vildi ekki, að varið yrði svona takmarkalaust fé umfram fjárl., er að vísu góðra gjalda verð, en hvers vegna vill hann þá eigi samþ. áskorun til stj. um að hún haldi gildandi reglur um fjármeðferð landsins?
Fylgismenn stj. reyna að bera í bætifláka fyrir hana með því, að miklu af því fé, sem hún hefir undanfarin ár eytt í heimildarleysi, hafi verið varið til nytsamlegra framkvæmda, er þingið hafi ákveðið, þótt síðar væri. En þessi vörn er í raun og veru fánýt. Stjórnin hefir enga heimild til þess að ausa fé í einhverjar framkvæmdir á þessu ári, þó að þingið hafi samþ., að þær skyldu gerðar einhverntíma í framtíðinni. Það væri alveg eins og ef bóndi gerði áætlun um að slétta túnið sitt á 10 árum, en ráðsmaður hans tæki það upp á sitt eindæmi að leggja í allan þann kostnað, sem af því leiddi, á einu einasta ári. — Hv. þm. var fundvís á þá liði á umframgreiðslum stj., sem nokkurn veginn var forsvaranlegt að greiða, en honum sást frekar yfir þá liði, sem gersamlega eru óforsvaranlegir. Hann veit samt af þeim, og hefir bent á suma þeirra í aths. við landsreikningana, en þó grunar mig, að ýmsir slíkir liðir séu faldir svo vandlega í ýmsum stórgreiðslum, að endurskoðendum landsreikninganna hafi sézt yfir þá. Ennfremur sagði hv. þm., að endurskoðendurnir hefðu ekki viljað bera fram till. um að skora á stj. að halda sér betur við fjárl. í framtíðinni. En þessi vilji þeirra bindur ekki mig á nokkurn hátt í þessu máli, og hefi ég fullan rétt til þess að bera fram vatill. þess efnis.
Hv. þm. V.-Húnv. var undrandi yfir því, að ég skyldi bera fram till., sem ég byggist við, að yrði felld. Því er til að svara, að ég veit ekki betur en þm. beri oft fram till. og frv., sem þeir eru ekki vissir um að nái samþykki, og færi þá einkennilega, ef mál væru aldrei borin fram, fyrr en flm. hefðu vissu fyrir því, að meiri hl. þm. væri þeim fylgjandi. Mundu þá mörg góð mál seint komast fram. Í öðru lagi vil ég gjarnan veita hv. stuðningsmönnum stj. þá ánægju, að lofa þeim að drepa þessa till. Það er óvenju undarlegur fyrirsláttur hjá þeim, að till. mín eigi ekki við, fyrst n. bar enga till. fram í þá átt.